Kveðst ekkert vita um rannsókn FBI á Nvidia
Blanche sagðist í dag ekki hafa neinar upplýsingar um öryggisheimildir Jensens Huang, sem nýlega var endurráðinn forstjóri, á sama tíma og þingmenn kröfðust svara um mögulega aðkomu Donalds Trump forseta að endurkomu Huangs til fyrirtækisins. AFP/Anna Moneymaker
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Todd Blanche, hefur farið fögrum orðum um örflöguframleiðandann Nvidia sem „góðan samfélagsþegn í fyrirtækjaheiminum“, en neitað að tjá sig um það hvort fyrirtækið sæti alríkisrannsókn.
Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Blanche sagðist í dag ekki hafa neinar upplýsingar um öryggisheimildir Jensens Huang, sem nýlega var endurráðinn forstjóri, á sama tíma og þingmenn kröfðust svara um mögulega aðkomu Donalds Trump forseta að endurkomu Huangs til fyrirtækisins.
Huang fékk starf sitt aftur innan við tveimur vikum eftir að hann var neyddur til að segja af sér í kjölfar uppljóstrana um framhjáhald, þar á meðal með konu sem talið er að sé kínverskur njósnari.
Kemur fyrir Bandaríkjaþing í næstu viku
Þegar Blanche var ítrekað spurður á þriðjudag hvort dómsmálaráðuneytið eða Alríkislögreglan (FBI) hefðu rannsakað Huang svaraði hann einfaldlega: „Ég veit ekki hvað þú ert að tala um.“
Enn stendur til að Huang komi fyrir Bandaríkjaþing í næstu viku, þar sem hann verður spurður út í áhyggjur af þjóðaröryggi vegna sambands hans við meintan kínverskan njósnara sem stýrði Megaspeed, fyrirtæki með aðsetur í Singapúr sem er viðskiptavinur Nvidia.
Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur einnig tilkynnt að það undirbúi að setja tæknifyrirtækið Megaspeed á svartan lista, en það er grunað um að hafa aðstoðað við að koma háþróuðum örflögum til Kína.
Í sameiginlegri yfirlýsingu í síðustu viku sögðu viðskipta- og dómsmálaráðuneytin að þau hefðu hafið rannsókn á Megaspeed árið 2024 vegna mögulegra brota gegn útflutningsbanni.
Í samtali við fréttamenn á þriðjudag sagði Blanche hins vegar að dómsmálaráðuneytið hefði „hundruð, ef ekki fleiri“ rannsóknir á útflutningsmálum í gangi á hverjum tíma, og því væri honum ekki alltaf kunnugt um gang einstakra mála.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗