Fólk orðið sjúkt í grín sem gekk einum of langt

Ekki óraði meðlimi hljómsveitarinnar Baggalúts fyrir því þegar þeir suðu fyrst saman þekkt erlend dægur- og rokklög við íslenska jólalagatexta að tuttugu árum síðar yrðu þeir að selja upp hverja jólatónleika á fætur öðrum, þar sem þessar óhefðbundnu en rammíslensku smíðar eru í forgrunni.

Sú hefur þó orðið raunin, og á komandi vikum mun sveitin flytja sína farsakenndu jólasmelli landshorna á milli undir yfirskriftinni Jólafílingur í 20 ár.

Í Dagmálaþætti mbl.is lítur Baggalúturinn, hugkvæmdastjórinn, málfrömuðurinn og spekúlantinn Bragi Valdimar yfir troðna slóð þeirra rúmlega tuttugu ára sem sveitin hefur verið að störfum, og það sem fram undan er hjá hljómsveitinni og helstu samspilsmönnum hennar.

Orðnir að því sem þeir gerðu grín að

Aðspurður um það hvernig hugmyndin að því að semja íslenska texta við þekkt erlend dægurlög, og ákvörðunin um að fara ekki leynt með þessa stælingu, hafi komið til segir Bragi upprunalegu ætlunina hafa verið þá að gera grín að gamalgróinni íslenskri hefð.

„Þetta byrjaði náttúrulega á því að við vorum að gera grín að þessari hefð Íslendinga að taka bara einhver lög og breyta þeim í jólalög, algjörlega óháð því til hvers lögin voru að byrja með, öll þessi ítölsku lög og allt þetta dót,“ segir hann. 

„Þannig að við byrjuðum á að taka svona þungarokkslög sem okkur fannst alveg sjúklega fyndið að breyta í jólalög.“

Í gegnum árin hafi grínið þróast, í seinni tíð hafi sveitin farið að semja meira af eigin lögum og skemmt sér og áheyrendum konunglega í leiðinni.

„En ég veit það ekki, fólk varð bara sjúkt í þetta,“ segir Bragi. 

„Þetta er bara ógeðslega skemmtilegt, og jólin eru til að gleðjast, og þá er bara um að gera. Þetta var náttúrulega, til að byrja með, kom svolítið á ská inn í jólahefðina, en ætli við séum ekki orðnir það sem við vorum að gera grín að?“

Horfa má á þáttinn í heild sinni hér: 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab