Herti reglur um slæðuburð og talar nú um íslamófóbíu

Konur á göngu um Teheran, höfuðborg Írans, í september. Fáar myndir bárust þaðan af blóðbaðinu fyrr á árinu, þegar stjórnvöld réðust gegn þeim sem mótmæltu klerkastjórninni. AFP

Fyrrverandi foringi í íranska Byltingarverðinum, sem gegnt hefur lykilhlutverki í mótun reglna um skyldubundinn slæðuburð kvenna og ritskoðun á netinu í Íran, verður einn aðalræðumanna á ráðstefnu um íslamófóbíu í Lundúnum.

Maðurinn, Saied Reza Ameli, var aðstoðaryfirmaður herdeildar Byltingarvarðarins á níunda áratugnum og var framkvæmdastjóri æðsta ráðs menningarbyltingarinnar í Íran á árunum 2019 til 2023.

Á þeim tíma herti ráðið reglur um skyldubundinn slæðuburð kvenna og írönsk yfirvöld brutu á bak aftur umfangsmikil mótmæli með því að drepa fjölda borgara.

Fyrr í dag fjallaði mbl.is um það hvernig írönsk söngkona hefði í gær þurft að þola 74 svipuhögg sökum tónlistarmyndbands þar sem hún sést án slæðu. 

Tugþúsundir drepnar fyrr á þessu ári

Ameli situr enn í ráðinu og var árið 2015 skipaður af Ali Khamenei, þáverandi æðsta leiðtoga Írans, í ráð sem mótar stefnu stjórnvalda um netnotkun og ritskoðun.

Kanadísk stjórnvöld beittu Ameli persónubundnum refsiaðgerðum árið 2023 vegna mannréttindabrota í Íran, að því er fram kemur í umfjöllun Iran International.

Fyrr á þessu ári er íranska klerkastjórnin talin hafa myrt tugþúsundir manna í landinu eftir að almenningur hafði enn og aftur tekið að mótmæla henni.

Stofnaði „mannréttindanefnd“ sem stendur að ráðstefnunni

Að ráðstefnunni standa meðal annars bresku samtökin Islamic Human Rights Commission (IHRC), eða Íslamska mannréttindanefndin, sem Ameli stofnaði ásamt fleirum árið 1997 og sat í stjórn til ársins 2022.

Góðgerðarsjóður á vegum samtakanna sætir þegar formlegri rannsókn breskra yfirvalda vegna gruns um annmarka á stjórnun sjóðsins, meðal annars í tengslum við fjármögnun viðburða IHRC, að því er Jerusalem Post greinir frá.

Að sögn IHRC hafa forráðamenn sýningarsalarins þar sem halda átti ráðstefnuna þegar rift bókuninni í kjölfar fundar með eftirlitsstofnun breskra góðgerðarsamtaka.

Skipuleggjendur hyggjast engu að síður halda ráðstefnuna 13. desember og mun Ameli samkvæmt dagskrá ávarpa gesti með myndskeiði frá Íran.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab