Óttast bakslag ef ekki verður hlustað á karla
Halla Tómasdóttir forseti Íslands segist ekki vilja að bakslag verði í jafnréttisbaráttunni hér á landi vegna þess að ekki hafi verið tekið eftir merkjum um vanlíðan drengja og karla.
Þetta kemur fram í viðtali við Höllu sem birtist á vef Georgetown Institute for Women, Peace and Security.
Halla segir sífellt fleiri karla upplifa að þeir séu hvorki séðir, metnir að verðleikum né á þá hlustað. Þeir glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.
Hún tekur fram að hún sé ekki að réttlæta bakslag í réttindabaráttu kvenna en segist velta því mikið fyrir sér hvernig hægt sé að gera jafnréttisbaráttuna að sameiginlegu verkefni allra kynja.
Karlar á Íslandi verði ekki eins og konur víða um heim
„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag vegna þess að okkur tókst ekki að sjá merkin um að drengir okkar og karlar ættu í erfiðleikum,“ segir Halla.
Hún segist afar stolt af þeim árangri sem náðst hefur á Íslandi en enn sé langt í land. Launamunur kynjanna sé enn til staðar og Íslendingar glími við kynbundið ofbeldi í sama mæli og aðrar þjóðir.
Halla segir mikilvægt að skapa körlum ekki þær aðstæður sem konur hafi þurft að búa við víða um heim. Það væri ekki sigur fyrir mannkynið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗