Ísraelar æfir vegna stuðnings við Palestínu

Stuðningsmenn Galatasaray í kvöld.

Stuðningsmenn Galatasaray í kvöld. Ljósmynd/@GalatasaraySK

Dursan Özbek, forseti tyrkneska knattspyrnufélagsins Galatasaray, segir að ísraelsk stjórnvöld hafi verið allt annað en sátt við stuðningsyfirlýsingar félagsins við Palestínu fyrir leik Galatasaray og Aston Villa í 5. umferð Meistaradeildarinnar í Istanbúl í dag.

Það er The Athletic sem greinir frá þessu en stuðningsmenn tyrkneska liðsins héldu á borðum í stúkunni með áletrunum á borð við „Gleymum ekki Gasa“ og „Stöðvum þjóðarmorðið“.

Özbek greindi frá því í samtali við The Athletic að ísraelsk stjórnvöld hefðu kvartað við evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, vegna borðanna.

Snýst ekki um pólitík

„Tyrkneska þjóðin mun halda áfram, líkt og við höfum gert í gegnum tíðina, að standa með þeim sem eru kúgaðir,“ sagði Özbek í samtali við The Athletic.

„Þetta snýst ekki um pólitík, afstaða okkar byggir á mannúð og samviskusemi,“ sagði Özbek enn fremur.

Í tilkynningu UEFA kemur fram að fánar og borðar til stuðnings Palestínu séu ekki talin ögrandi af sambandinu og því leyfð á leikjum á vegum þess án viðurlaga.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab