„Vorum ekki nægilega þéttir“

Ágúst Guðmundsson skorar eitt af átta mörkum sínum í kvöld.

Ágúst Guðmundsson skorar eitt af átta mörkum sínum í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

„Það er alltof mikið að fá 40 mörk á okkur og það vantaði bara talsvert upp á bæði vörn og markvörslu í leiknum,“ sagði Ágúst Guðmundsson leikmaður FH eftir 40:35-tap gegn spænska liðinu Bidasoa í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld.

„Við vorum ekki nægilega þéttir varnarlega og náðum ekki að klukka þá og gegn svona sterku liði þá endar þetta bara svona,“ sagði Ágúst spurður út í hvað hafi vantað upp á í varnarleik liðsins.

Aron Pálmarsson fylgist með liði sínu í kvöld.

Aron Pálmarsson fylgist með liði sínu í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

FH-ingar hefðu þó getað byggt upp forskot í byrjun leiks en slæm skotnýting liðsins kostaði Hafnfirðinga nokkur mörk í byrjun leiks. Um þennan kafla leiksins sagði Ágúst.

„Mér fannst þetta vera mjög jafnt fyrstu 15 mínúturnar og við fengum tækifæri til að vera yfir á þessum kafla í leiknum. Síðan förum við að tapa boltanum eftir það og þá misstum við andstæðinginn of langt frá okkur.

Ef þú tapar nokkrum boltum í röð gegn svona sterkum liðum eins og eru í þessari Evrópudeild þá missir þú þau bara fram úr þér.“

Það var hart barist í Kaplakrika í kvöld. Hér er Ómar Darri Sigurgeirsson að sleppa í gegnum vörn Bidasoa. mbl.is/Eythor Arnason

Ykkur tekst samt að komast upp að þeim í nokkur skipti í seinni hálfleik en missið þá síðan alltaf aftur fram úr ykkur. Hvað er að fara úrskeiðis á þessum köflum þegar þið eruð að nálgast þá en síðan gerist eitthvað?

„Það er góð spurning. Við vorum ekki nægilega þéttir varnarlega og þeir voru bara mjög fljótir að refsa okkur þegar við gáfum eftir. Það kostar mikla orku að vinna upp svona forskot og þeir bjuggu bara að því í seinni hálfleik að hafa náð þessu forskoti í fyrri hálfleik,“ sagði Ágúst í samtali við mbl.is.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab