Stórstjarna Liverpool virtist skjóta á Arne Slot

Florian Wirtz.

Florian Wirtz. AFP/Bruno Fahy

Þýski knattspyrnumaðurinn Floran Wirtz virtist skjóta á Arne Slot, fyrrverandi knattspyrnustjóra Liverpool, á blaðamannafundi enska liðsins í dag.

Wirtz hefur byrjað tímabilið vel með Liverpool og skoraði þrjú mörk ásamt því að leggja upp önnur sex í 16 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu en Andoni Iraola tók við stjórnartaumunum hjá félaginu í sumar af Slot.

Þjóðverjinn skoraði sjö mörk í öllum keppnum í fyrra og lagði upp önnur tíu en hann hefur nú þegar lagt upp fleiri mörk í úrvalsdeildinni á tímabilinu en hann gerði á síðustu leiktíð.

Nær því besta úr mér

„Ég er klárlega í mínu besta formi frá því að ég kom til félagsins síðasta sumar,“ sagði Wirtz á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Club Brugge sem fram fer í Belgíu á morgun.

„Ég hef í rauninni ekki breytt neinu. Ég er líkamlega sterkari og er farinn að þekkja deildina betur. Ég nýt þess að spila undir stjórn Iraola og hann hefur sýnt það og sannað að hann er frábær þjálfari. Hann er að ná því besta út úr mér og ég er að ná aftur fyrri hæðum.

Hann hefur mikla trú á mér og það er góð tilfinning, það fyllir mig sjálfstrausti. Ég vil að sjálfsögðu endurgjalda honum trúna sem hann hefur á mér og standa mig vel fyrir hann,“ bætti Wirtz við.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab