„Erum með hærri standard en það“
„Þetta var 100% leikurinn til að sækja fyrsta sigurinn í Evrópudeildinni,“ sagði Jón Bjarni Ólafsson línumaður FH eftir fimm marka tap gegn Bidasoa í næstsíðustu umferð Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld.
Vorum sjálfum okkur verstir
„Við vorum sjálfum okkur verstir og klaufar í leiknum. Við hefðum getað gert betur á svo mörgum sviðum í kvöld og uppskárum í samræmi við það,“ sagði Jón Bjarni spurður út í hvað hafi farið úrskeiðis í leik FH í kvöld.
Leikmenn FH voru ekki teknir neinum vettlingatökum af andstæðingnum í kvöld. Hér er Antoine Óskar Pantano í baráttunni. mbl.is/Eythor Arnason
FH-ingar héldu í við andstæðing sinn fyrst um sinn og hefðu hæglega getað byggt upp gott forskot í upphafi þar sem leikmenn BIdasoa fengu ítrekað dæmt á sig sóknarbrot.
„Á þessum tímapunkti áttum við auðvitað að vera að byggja upp forskot fyrir slæma kafla í leiknum en skotnýtingin okkar var bara alls ekki nægilega góð á þessum kafla í leiknum.“
Þið fáið 40 mörk á ykkur í leiknum. Ég þykist vita að þér þyki það alltof mikið, ekki satt?
„Það er alltof mikið. Við erum með hærri standard en það að fá á okkur svona mörg mörk í einum leik. Þetta verður lagað, það er klárt.“
Vantar bara að sækja helvítis sigurinn
Það er einn leikur eftir í þessari Evrópukeppni. Sá leikur er gegn Limoges í Frakklandi. Hvað vantar upp á til að sækja fyrsta sigurinn?
„Við höfum alveg verið nokkuð nálægt þessu í flestum leikjunum í Evrópukeppninni. Það eina sem vantar upp á er bara að sækja helvítis sigurinn,“ sagði Jón Bjarni í samtali við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
