Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 22:30
Úkraínskir hermenn í Donetsk. Mynd:Getty
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza og Mediazona.
New York Times greinir frá þessu en niðurstöðurnar byggja meðal annars á umfangsmiklum gögnum sem tveir hópar tölvuþrjóta, sem styðja málstað Úkraínu, komust yfir hjá rússnesku hagstofunni.
Rússnesk stjórnvöld hafa haldið upplýsingum um mannfall í stríðinu leyndum fyrir almenningi. Meduza og Mediazona hafa um árabil reynt að leggja mat á mannfallið, meðal annars með greiningu á gögnum um dánarbú og andlátstilkynningum.
Mikil töf á skráningu dauðsfalla
Í nýju gögnunum fundu fjölmiðlarnir upplýsingar um að minnsta kosti 490 þúsund dauðsföll rússneskra hermanna sem skráð höfðu verið hjá yfirvöldum í september síðastliðnum.
Mikil töf er hins vegar á skráningu dauðsfalla og ná gögnin hvorki yfir flest dauðsföll rússneskra hermanna á þessu ári né stóran hluta þeirra sem féllu á síðasta ári.
Með tölfræðilegum aðferðum, og að teknu tilliti til hermanna sem saknað er og taldir eru af, komust fjölmiðlarnir að þeirri niðurstöðu að líklega hefðu yfir 700 þúsund rússneskir hermenn fallið frá upphafi stríðsins í febrúar 2022.
Tekið er fram að talan nái til þeirra sem hafa látist og ekki sé tekið tillit til þeirra sem hafa slasast eða örkumlast.
New York Times tekur fram að blaðið hafi ekki sannreynt gögnin sjálfstætt eða niðurstöður greiningarinnar.
Halda áfram að fjölga í hernum
Michael Kofman, sérfræðingur hjá Carnegie-stofnuninni í Bandaríkjunum, segir að Rússar láti engan bilbug á sér finna og allt stefni í að yfir 400 þúsund manns gangi í herinn á þessu ári. Rússnesk yfirvöld bjóða enn háar fjárhæðir þeim sem ganga til liðs við herinn.
Að mati Kofmans gerir þessi nýliðun Rússum kleift að halda stríðinu áfram þrátt fyrir mikið mannfall. Ólíklegt sé þó að hún dugi til að bæta stöðu þeirra á vígvellinum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗