City slapp með jafntefli – Real Madrid skoraði fimm

Rayan Cherki fagnar jöfnunarmarki sínu í kvöld.

Rayan Cherki fagnar jöfnunarmarki sínu í kvöld. AFP/Paul Ellis

Rayan Cherki bjargaði stigi fyrir Manchester City þegar liðið tók á móti Napoli í 5. umferð Meistaradeildarinnar í fótbolta í Manchester í kvöld.

Leiknum lauk með jafntefli, 2:2, en Cherki skoraði jöfnunarmark City þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

City er í sjötta sæti deildarinnar með 10 stig en Napoli er í 27. sætinu með fjögur stig og hefur aðeins unnið einn leik af fimm.

PSV leiddi í hálfleik

Rasmus Höjlund kom Napoli yfir á 55. mínútu en Ayyoub Bouaddi jafnaði metin fyrir City á 67. mínútu. Noa Lang kom Napoli yfir á nýjan leik á 76. mínútu áður en Cherki jafnaði metin á þeirri 86.

Þá vann Real Madrid stórsigur gegn PSV, 5:1, í Madríd þar sem Kylian Mbappé skoraði tvívegis fyrir Real Madrid og þeir Federico Valverde, Jude Bellingham og Vinícius Júnior sitt markið hver en PSV leiddi 1:0 í hálfleik með marki frá Ivan Perisic.

Real Madrid trónir á toppnum með 15 stig eða fullt hús stiga en PSV er í 28. sætinu með 4 stig.

Úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni:

Arsenal – Borussia Dortmund 1:1
Como – AEK 1:0
Feyenoord – Porto 0:1
Manchester City – Napoli 2:2
RB Leipzig – Lens 3:1
Real Madrid – PSV 5:1
Slovan – Real Betis 0:2

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab