„Ég borga öðrum 41 þúsund á mánuði fyrir að sjá um skipulagið í lífi mínu, það er þess virði“
Maxine Dillion, 44 ára gömul tveggja barna móðir, átti í erfiðleikum með skipulagningu og umsýslu daglegs lífs, þennan endalausa lista yfir heimilisverk og ýmis persónuleg erindi. Hún kom sér einfaldlega ekki í að sinna og ljúka mörgum verkum, sem dæmi að fá iðnaðarmann til að laga eitthvað eða að skila fatnaði sem hún hafði keypt.
BBC ræðir við nokkrar mæður sem nýta sér þjónustu sem þessa mánaðarlega.
„Mér fannst öll smáverkin, sem ég hafði ekki tíma fyrir, hrannast upp,“ segir Dillion, sem er sjálfstætt starfandi og aðstoðar fyrirtæki við samfélagsmiðlanotkun þeirra. Á síðasta ári rakst Maxine, sem býr í Mansfield í Nottinghamshire í Bretlandi, á nýtt fyrirtæki sem kallast Life Laundry, sem útleggja má sem Lífþvottur.
Fyrirtækið var stofnað árið 2025 af tveimur konum í Wakefield í Yorkshire, og þar er hægt að óska eftir og greiða fyrir aðstoð við hvers kyns skipulagningu og umsýslu í daglegu lífi. Þjónusta af þessu tagi gengur undir heitinu „einka- og skipulagsaðstoð“ (e. life personal assistant) og hefur slíkum fyrirtækjum fjölgað verulega á undanförnum árum.
Dillion, sem hefur 32.000 pund í árslaun eða rúmlega 5,2 milljónir króna, hefur ekki úr miklu ráðstöfunarfé að spila, en hún ákvað engu að síður að verja 250 pundum á mánuði (40.989 kr.) í fimm klukkustunda vinnu. Hún telur þjónustuna vel þess virði, enda létti hún á „andlegu álagi“ hennar.
Eigendur Life Laundry, Alicia Papachristou og Jane Forbes, sjá nú um ýmislegt fyrir Dillion. Þær aðstoða hana meðal annars við tryggingamál, samskipti við skóla og umsjón með netáskriftum. Stöllurnar geta unnið stóran hluta verkefnanna í fjarvinnu, en einu sinni í mánuði ferðast þær til Mansfield til að sinna þeim verkefnum sem krefjast þess að þær séu á staðnum.
„Ef einhver spyr hvað við gerum, þá segjumst við vera einka- og skipulagsaðstoðarmenn, og að við hjálpum fólki að ná tökum á hlutunum þegar álagið verður of mikið,“ segir Forbes.
Lætur aðra sjá um þvottinn og fleira
Þar sem fyrirtæki af þessu tagi verða sífellt algengari í Bandaríkjunum hefur önnur vinnandi móðir með annríkt líf, Amanda Sims Nichols í Austin í Texas, einnig ráðið fyrirtæki til að sjá um skipulagningu og umsýslu daglegs lífs.
Nichols, sem er 45 ára og starfar sem viðskiptaráðgjafi, á þrjú börn með eiginmanni sínum sem er lögfræðingur. Hún ákvað að kaupa sér aðstoð við hversdagsleg verkefni eftir að fjölskyldan flutti og baklandið sem hún naut áður aðstoðar frá varð lengra í burtu.
Amanda Sims Nichols.
Nichols greiðir 1.750 pund (287 þúsund krónur) á mánuði fyrir 25 klukkustunda þjónustu og segist njóta þess að losna við hefðbundin heimilisverk, svo sem vikuleg matvöruinnkaup og þvotta.
„Peningar geta ekki keypt allt, en þeir geta keypt þér tíma. Og þar sem við eigum þrjú börn og erum bæði í krefjandi störfum, finnst okkur þetta vera gríðarlega dýrmætt. Við höfum tekið meðvitaða ákvörðun um að það sé þess virði að fjárfesta í meiri tíma saman, tíma sem fer ekki í að þvo og ganga frá þvotti.“
Fyrirtækið sem hún nýtir sér, Queen of To Do, var stofnað af Kate Ginsberg árið 2011. Ginsberg segir að áhugi á þjónustu fyrirtækisins hafi aukist verulega í kjölfar kórónuveiruheimsfaraldursins. Fyrirtækið hefur nú meira en 50 virka notendur, en hjá Life Laundry eru viðskiptavinirnir 25 talsins. Bæði fyrirtækin segja eftirspurn eftir þjónustu sinni fara vaxandi, enda verður líf fólks sífellt meira ruglingslegt.
Ginsberg segir að verkefnin sem unnin eru fyrir viðskiptavini geti verið afar fjölbreytt; engin verkefni séu of stór eða of smá. Meðal stærri verkefna sem teymi hennar hefur tekist á við í gegnum tíðina má nefna að fljúga frá Austin til New York til að kaupa jólagjöf sem lá mikið á að fá, og að finna nýjan stað fyrir brúðkaup með aðeins þriggja daga fyrirvara, vegna fellibyls sem var í nánd.
Jess Baker, löggiltur sálfræðingur í Bretlandi, segir skiljanlegt hvers vegna fólk leiti til þjónustuaðila sem þessara. „Að hafa aðstoðarmanneskju í daglegu lífi, ef maður hefur efni á því, léttir á þeirri pressu sem fylgir því að þurfa að halda utan um hundruð verkefna í huganum, eða á listum sem maður gæti gleymt að skoða,“ segir hún.
„Annars getur þetta andlega álag leitt til þess að manni finnist allt verða yfirþyrmandi, ásamt óhóflegum áhyggjum og þreytu.“
„Við hittumst tvisvar í viku á Zoom“
Segir Baker að þó það geri virst munaður að greiða fyrir aðstoð við slík verkefni, getur stuðningur við hversdagslegar áskoranir lífsins verið lífsbjörg fyrir suma.
Anna Allington leitaði eftir aðstoð eftir að eiginmaður hennar lést. „Eiginmaður minn lést. Ég var 47 ára. Og sömu vikuna og hann lést greindist ég með hvítblæði. Það var ýmislegt sem þurfti að ganga frá og mér leið afar illa.“
Anna, sem nú er 51 árs, glímir enn við eftirköst krabbameinsins. „Ég get ekki skipulagt og framkvæmt hlutina eins og ég gat áður.“
Hún greiðir 1.200 pund á mánuði fyrir 40 klukkustunda aðstoð frá fyrirtækinu Vi-Va, sem er staðsett í Cheshire. Aðstoðarmanneskja hennar hjálpar henni að svara tölvupóstum, halda utan um dagatalið og skipuleggja ferðalög og bókanir.
„Við hittumst tvisvar í viku á Zoom til að fara yfir öll verkefnin mín,“ segir Anna, sem býr í Cotswolds-héraði.
Mun fleiri konur en karlar nýta sér þjónustu þessara fyrirtækja.
Hjá Queen of To Do eru aðeins 20% viðskiptavina karlmenn, en hjá Life Laundry er aðeins einn karlmaður í hópi 25 viðskiptavina. Að hluta til má rekja þennan mun til þess að mæður sjá enn um stærstan hluta skipulagsvinnu á heimilinu, eins og rannsóknir halda áfram að sýna.
Forbes, hjá Life Laundry, veltir hins vegar fyrir sér hvort sumir karlmenn séu of stoltir til að biðja um aðstoð.
„Karlmenn eiga líka í erfiðleikum, en ég held að þeir séu ólíklegri til að biðja um hjálp.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗