Þjóðverjinn hetja Dortmund gegn Arsenal
Maximilian Beier reyndist hetja Borussia Dortmund þegar liðið heimsótti Arsenal í 5. umferð Meistaradeildarinnar í fótbolta í Lundúnum í kvöld.
Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, í fjörugum leik en Beier skoraði jöfnunarmark Dortmund á 55. mínútu.
Arsenal er í 5. sæti deildarinnar með 11 stig en liðið hefur gert tvö jafntefli í síðustu þremur leikjum sínum, gegn Bayern München og Dortmund í kvöld.
Dortmund er hins vegar með 10 stig í sjöunda sætinu en liðin í átta efstu sætunum fara beint í 16-liða úrslitin á meðan liðin í 9.–24. sæti fara í umspil.
Frábært skot Gyökeres
Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir strax á 10. mínútu með frábæru skoti, rétt utan teigs, sem Gregor Kobel í marki Dortmund réð ekki við.
Beier jafnaði hins vegar metin fyrir Dortmund þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en Joane Gadou átti þá frábæran sprett úr vörn Dortmund.
Hann kom boltanum á Beier sem fór illa með Gabriel í vörn Arsenal áður en hann lagði boltann snyrtilega fram hjá Kepa í marki Arsenal.
Arsenal setti mikla pressu á þýska liðið á lokamínútunum en tókst ekki að koma boltanum í netið og jafntefli því niðurstaðan.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗