Melania Trump tók fram gamla jólakápu
Melania Trump tók á móti jólatré í Hvíta húsinu í kápu sem hún er búin að eiga í fataskápnum í nokkur ár. AFP/Aaron Schwartz
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, er byrjuð að undirbúa jólin í Hvíta húsinu. Frú Trump tók á móti jólatrénu í Hvíta húsinu í kápu sem er nokkurra ára gömul.
Það er árleg hefð að forsetafrúin taki formlega á móti risastóru jólatré fyrir framan Hvíta húsið. Koma jólatrésins markar árlega upphaf hátíðahalda í Hvíta húsinu og sér forsetafrúin um skreytingarnar.
Forsetafrúin klæðist gjarnan sínu fínasta pússi þegar hún tekur á móti jólatrénu en að þessu sinni var hún í gamalli flík enda er hægt að eiga fallega yfirhöfn í mörg ár.
Fram kemur á vef Hello að frú Trump hafi verið í köflóttri síðri kápu frá Gabrielu Hearst. Kápan er í hátíðleg í hvítum og rauðum litum og sást forsetafrúin fyrst í henni á jólaviðburði árið 2019. Við kápuna var Trump í rauðum pinnahælum.
Melania Trump var í rauðum pinnahælum við kápuna. Hesturinn þurfti enga spariskó. AFP/Aaron Schwartz
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


