Vilja skýran rétt til að hafna upplýsingum um eigin erfðir
Í þingsályktunartillögunni er lagt til að lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði verði breytt svo unnt verði að miðla til fólks, eftir atvikum án fyrirfram samþykkis, upplýsingum úr vísindarannsóknum um eigin arfgerð og aðra heilsufarsþætti. Jafnframt er lagt til að fólk eigi rétt á að hafna því að fá slíkar upplýsingar. Ljósmynd/Colourbox
Landssamband eldri borgara vill að skýrt verði kveðið á um rétt fólks til að hafna upplýsingum um eigin erfðir áður en þeim er miðlað.
Sambandið vill að velferðarnefnd Alþingis skýri við hvaða aðstæður eigi að mega miðla slíkum upplýsingum til fólks án þess að það hafi samþykkt að fá þær.
Þetta kemur fram í umsögn sambandsins um þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu. Umsögnin var birt á vef Alþingis í dag.
Fólk geti breytt afstöðu sinni
Í þingsályktunartillögunni er lagt til að lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði verði breytt svo unnt verði að miðla til fólks, eftir atvikum án fyrirfram samþykkis, upplýsingum úr vísindarannsóknum um eigin arfgerð og aðra heilsufarsþætti.
Jafnframt er lagt til að fólk eigi rétt á að hafna því að fá slíkar upplýsingar.
Sambandið óskar eftir því að nefndin skýri hvernig fyrirhuguð heimild til miðlunar án samþykkis eigi að samræmast réttinum til að hafna upplýsingunum. Auðvelt þurfi að vera að breyta afstöðu sinni síðar.
Sambandið leggur til að hægt verði að skrá afstöðu til miðlunar erfðaupplýsinga í síma eða með aðstoð starfsfólks á staðnum samhliða rafrænum leiðum.
Markvissara lyfjaval geti skipt miklu
Sambandið styður markmið tillögunnar um að nýta upplýsingar til að velja meðferð sem hentar hverjum sjúklingi. Það bendir á að markvissara lyfjaval geti skipt miklu fyrir eldra fólk með fleiri en einn langvinnan sjúkdóm sem tekur mörg lyf að staðaldri.
Sambandið vill að upplýsingar sem skipta máli fyrir lyfjaval nýtist einnig við reglubundna endurskoðun lyfjameðferðar og að sjúklingar fái skýringar á því hvers vegna henni er breytt. Þá þurfi að tryggja að búseta og stafræn færni ráði því ekki hverjir njóta góðs af breytingunum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗