Synti í Hormússundi: „Verð að koma mér héðan strax“

Breski langsundsmaðurinn Lewis Pugh synti 15 kílómetra um Hormússund undan strönd Ómans í síðustu viku til að vekja athygli á umhverfisspjöllum af völdum stríðs. Sundið tók þrjá daga. Á meðan varð hann vitni að árásum á tvö tankskip.

Pugh, sem er 56 ára, hefur áður synt í frosti á norðurpólnum og innan um hákarla og marglyttur.

„Venjulega tekst ég á við náttúruna en í þessu sundi var hættan öll af mannavöldum,“ sagði hann í viðtali við AFP í London í gær.

„Á himni voru drónar og orrustuþotur, í sjónum var olíumengun og undir yfirborðinu voru tundurdufl.“

Þegar Pugh sneri höfðinu og lyfti því úr sjónum til að draga andann sá hann tankskip í skipalest öðrum megin. Sum þeirra stóðu í ljósum logum. Hinum megin sá hann fiskierni og höfrunga.

„Ég mun aldrei, aldrei gleyma því hve ólíkar sjónir blöstu við mér sitt hvorum megin.“

Olíuskip varð fyrir skoti

Reglulega hefur verið ráðist á skip á Hormússundi síðan árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í febrúar hrundu af stað stríðinu í Mið-Austurlöndum. Í kjölfarið hafa stríðsaðilar á víxl gripið til aðgerða til að loka þessari mikilvægu siglingaleið.

Íran er hinum megin sundsins frá Óman. Írönsk stjórnvöld hafa beint árásum að skipum sem þau segja sigla um sundið án heimildar.

Pugh hafði synt í hálftíma fyrsta daginn þegar skot hæfði olíuskip í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð.

„Ég var með höfuðið í kafi og það kom þvílíkur dynkur,“ sagði Pugh, sem ber titilinn „verndari hafsins“ hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna. „Ég man að ég leit upp og hugsaði […] ég verð að koma mér héðan strax.“

Á öðrum degi sundsins varð tankskipið Tara Gas fyrir árás og eldhnettir þeyttust upp í loftið. „Það logaði í sjónum umhverfis skipið og efnalyktin var svo megn.“

Pugh sagði AFP að indverskur sjómaður, sem kveðst hafa verið um borð þegar árásin var gerð, hefði síðar haft samband við sig.

„Enginn vinnur þetta stríð“

„Það var ógnvekjandi að lenda þarna í miðju stríðinu,“ sagði Pugh. Hann sagði að langvinn átökin bitnuðu jafnt á sjómönnum og fólkinu í teyminu hans sem höfrungum og skjaldbökum í sundinu.

„Stríð hefur áhrif á fólk mjög, mjög lengi,“ sagði Pugh. „Og það sama á við um náttúruna.“

„Við verðum að stöðva þessi átök. Þau hafa staðið allt of lengi. Enginn vinnur þetta stríð,“ bætti hann við.

„Við náum aldrei varanlegum friði milli þjóða ef við eyðileggjum sjálfar undirstöður lífs á jörðinni.“

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab