FH tapaði síðasta heimaleiknum

Ómar Darri Sigurgeirsson sækir að Spánverjunum í kvöld.

Ómar Darri Sigurgeirsson sækir að Spánverjunum í kvöld. mbl.is/Eyþór

FH og spænska liðið Bidasoa mættust í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld og lauk leiknum með sigri Bidasoa 40:35. FH hefur því tapað öllum leikjum sínum í Evrópudeildinni hingað til.

Jafnt var á með liðunum til að byrja með og voru FH-ingar klaufar að vera ekki með forskot eftir fyrstu 10 mínútur leiksins sökum klaufagangs í sóknarleik Bidasoa.

Ómar Darri Sigurgeirsson sækir að marki Bidasoa í kvöld.

Ómar Darri Sigurgeirsson sækir að marki Bidasoa í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn fór munurinn á liðunum að koma í ljós og seig spænska liðið hægt og rólega fram úr Hafnfirðingum.

Mestur var munurinn fimm mörk í fyrri hálfleik en gestirnir fóru með fjögurra marka forskot í stöðunni 19:15 inn í hálfleikinn.

Brynjar Narfi Arndal var markahæstur í liði FH í fyrri hálfleik með fjögur mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði fimm skot.

Hjá gestunum var Miguel Ángel Martín með sex mörk og varði David Faílde átta skot.

Aron Pálmarsson fagnar einu af mörkum FH í leiknum.

Aron Pálmarsson fagnar einu af mörkum FH í leiknum. mbl.is/Eythor Arnason

FH-ingar náðu nokkrum sinnum að minnka muninn niður í tvö mörk í seinni hálfleik en alltaf tókst gestunum að byggja mun sinn upp aftur og náðu þeir inn á milli fimm marka forskoti.

FH-liðið sýndi á köflum fína takta en í kjölfarið á þeim komu slæmir kaflar sem kostuðu Hafnfirðinga of mikið í baráttu sinni um fyrsta sigurinn í Evrópudeildinni. Fór því sem fór og FH-ingar eiga einn leik eftir í Evrópudeildinni og er það gegn franska liðinu Limoges í Frakklandi eftir slétta viku. 

Ingvar Dagur Gunnarsson fagnar marki sínu í kvöld.

Ingvar Dagur Gunnarsson fagnar marki sínu í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

 Ágúst Guðmundsson skoraði 8 mörk fyrir FH í kvöld og varði Jón Þórarinn Þorsteinsson sex skot. 

Miguel Ángel Martin skoraði 8 mörk fyrir Bidasoa og varði David Fíalde 10 skot.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab