Örlag Valsmanna ráðast í lokaumferðinni

Gunnar Róbertsson fór mikinn í kvöld.

Gunnar Róbertsson fór mikinn í kvöld. mbl.is/Eyþór Árnason

Valur þarf á sigri að halda í lokaumferð H-riðils Evrópudeildarinnar í handbolta eftir tap gegn Mors-Thy í Danmörku í kvöld.

Leiknum lauk með þriggja marka sigri Mors-Thy, 36:33, en Valsmenn eru áfram í öðru sæti riðilsins með 4 stig, líkt og Mors-Thy, en Íslandsmeistararnir þurfa sigur í lokaumferðinni gegn toppliði Slovan í næstu viku til þess að komast áfram í útsláttarkeppnina.

Stiven Tobar Valencia átti stórleik fyrir Val og skoraði níu mörk úr níu skotum og þá skoraði Gunnar Róbertsson átta.

Íslendingarnir fóru mikinn

Teitur Örn Einarsson skoraði sjö mörk fyrir Gummersbach þegar liðið lagði La Rioja í G-riðlinum í Þýskalandi, 42:26. Garðar Ingi Sindrason skoraði fimm mörk og Elliði Snær Viðarsson þrjú en Gummersbach er í efsta sætinu með 6 stig líkt og Wybrzeze Gdansk. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.

Tryggvi Þórisson komst ekki á blað hjá Elverum þegar liðið vann öruggan sigur gegn Hammarby, 31:22, í A-riðlinum í Svíþjóð en Elverum er með sex stig í öðru sæti riðilsins.

Breki Hrafn Árnason náði ekki að verja skot í marki Benfica þegar liðið vann stórsigur gegn Torrelavega á Spáni í F-riðlinum, 30:25, en Benfica er í öðru sætinu með 6 stig líkt og Holstebro.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab