Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Fókus
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 21:30
Bonnie Blue komst í kast við lögin.
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína.
Hin 27 ára gamla Bonnie, sem heitir réttu nafni Tia Billinger, hefur vakið mikla athygli fyrir að ferðast um háskólabæi og -borgir í Bretlandi á rútu sinni og bjóða ungum karlmönnum um borð. Er hún nú daglegur gestur á síðum bresku slúðurblaðanna eftir að hún setti heimsmet með því að rekkja hjá meira en þúsund karlmönnum á 12 klukkustundum.
Hún eignaðist sitt fyrsta barn í september síðastliðnum, sjálf segir hún í viðtali ekki hafa hugmynd um hver faðirinn er.
Nú hefur hún tilkynnt að umdeild kynlífsrúta hennar sé aftur komin á kreik.
„Ég hef sett þarna smá brjóstamjólk svo þið verðið stórir og sterkir,“ segir hún í myndbandi á TikTok.
Kynferðislegur áhugi á brjóstagjöf og brjóstamjólk er ekkert nýtt af nálinni. Samkvæmt rannsókn Kinsey-stofnunarinnar hafa 31 prósent karla einhvern tímann haft kynferðislegar hugmyndir sem tengjast brjóstamjólk með einhverjum hætti.
„Ég hef varið starfsferli mínum í að finna nýjar leiðir til að örva karlmenn svo það var viðbúið að móðurhlutverkið myndi gefa mér nokkrar nýjar hugmyndir,“ segir Bonnie í samtali við breska miðilinn Metro.
„Ég veit að brjóstamjólkin mun fá fólk til að reka upp stór augu en ég hef aldrei byggt starfsferil minn á því að öllum líði vel með það sem ég geri. Að vera móðir er eitthvað sem ég er ótrúlega stolt af en þótt ég sé orðin móðir þýðir það ekki að ég sé horfin. Ef eitthvað er hef ég eignast alveg nýjan áhorfendahóp.“
Kynferðislegur áhugi á brjóstamjólk er þó ekki bundinn við klámiðnaðinn. Hann hefur meðal annars birst í vinsælum ástarsögum og verið til umræðu á samfélagsmiðlum á borð við Reddit.
Þar hafa bæði karlar og konur lýst áhuga sínum brjóstagjöf og lýst yfir áhuga á að prófa slíkt með maka sínum. Áhuginn er þó fjarri því að vera almennur en í sömu umræðum lýsa margar konur því hvað þeim þykir óþægilegt að láta snerta á sér brjóstin á meðan þær eru með barn á brjósti.
Metro bendir jafnframt á að gera verði skýran greinarmun á kynferðislegu blæti fullorðinna einstaklinga og því að gera brjóstagjöf kvenna á almannafæri að kynferðislegu viðfangsefni þegar þær eru einfaldlega að næra börn sín.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗