Algjört klúður á Englandi - Stig dregin af liðinu vegna leikmanns sem snerti ekki boltann

Þrjú stig hafa verið dregin af kvennaliði Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni vegna brots á reglum um skiptingar.

Palace vann 1-0 sigur á Everton í september en gerði breytingar á liðinu í fjórum mismunandi gluggum í leiknum. Heimilt er að gera fimm skiptingar en aðeins í þremur gluggum, að hálfleik undanskildum.

Síðasta skipting Palace var gerð á 97. mínútu en Kirsty Howat kom þá inn á og snerti aldrei boltann áður en flautað var til leiksloka.

Palace hefur viðurkennt brotið en telur refsinguna úr hófi. Ekki er hægt að áfrýja niðurstöðunni.

Við þetta fellur Palace niður í 13. og næstneðsta sæti deildarinnar. Everton fær hins vegar engin stig og leikurinn verður ekki endurtekinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab