Stöðin í stækkun
Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Sigöldustöðvar og byrjað er að grafa fyrir stækkun stöðvarhússins. Ístak annast verkið og mun jafnframt sjá um að byggja mannvirki vegna stækkunarinnar.
Ístak hefur komið upp vinnubúðum og mötuneyti á framkvæmdasvæðinu. Landsvirkjun vinnur nú að því að koma upp eigin aðstöðu þar og verða vinnubúðir fyrirtækisins teknar í notkun á nýju ári.
Nokkrir tugir manna starfa nú á framkvæmdasvæðinu og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi eftir því sem verkinu vindur fram, að sögn Gunnars Arons Ólasonar, upplýsingafulltrúa nýframkvæmda hjá Landsvirkjun. Þegar mest lætur má búast við að um 140 manns starfi á svæðinu.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗