Unnu skemmdarverk á bíl Gríms Grímssonar

Málið var síðar fellt niður af héraðssaksóknara, sem þótti það ekki líklegt til sakfellingar. mbl.is/Karítas

Nokkrum dögum fyrir jól árið 2023 var skemmdarverk framið á bíl Gríms Grímssonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns og yfirmanns miðlægrar deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en málið var síðar fellt niður af héraðssaksóknara, sem þótti það ekki líklegt til sakfellingar.

Atvikið átti sér stað nokkrum mánuðum eftir að kveikt var í bíl lögregluþjóns í kjölfar hótana í hennar garð, en einnig var fallið frá saksókn í því máli.

Í rannsóknarþættinum Kveik á RÚV var í kvöld greint frá hótunum í garð lögreglumanna, meðferð mála þar sem öryggi lögreglumanna er hótað og tíðum niðurfellingum þeirra mála sem varða brot gegn valdstjórninni.

Atvikið náðst á myndband og maður handtekinn

Skemmdarverkið var framið með þeim hætti að spreymálningu hafði verið úðað á framrúðu bíls Gríms og þar sem ljóst þótti að atvikið tengdist störfum Gríms í lögreglunni var málið rannsakað sem brot gegn valdstjórninni.

Þótt myndavélar í bílnum hafi náð atvikinu á myndband og sýnt manninn koma í gegnum bakgarða nágranna að bíl Gríms, úða bílinn og hverfa á braut, og Íslendingur á þrítugsaldri hafi verið handtekinn grunaður um verknaðinn á grundvelli trúverðugra upplýsinga, var málið látið niður falla.

Héraðssaksóknari hafði þá ekki talið málið líklegt til sakfellingar, en síðar kom í ljós að gögn úr rannsókninni sýndu fram á umtalsvert fleira sem tengdi manninn við atvikið. Við húsleit á heimili hans hafi til að mynda fundist fatnaður sláandi líkur þeim sem gerandinn sást klæðast, og málning eins og sú á bílnum fundist á skóm mannsins, auk annarra gagna. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab