Óþekkta efnið kunni að tengjast skartgriparánum
Losun óþekkts efnis, sem leiddi til þess að rýma þurfti tónleika í stærstu innanhússhöll Bretlands, gæti tengst skartgripaþjófnuðum.
Um 12.000 manns voru á tónleikum bandaríska rapparans Don Toliver í Co-op Live-höllinni í Manchester í norðvesturhluta Englands á sunnudagskvöld þegar atvikið átti sér stað en 89 tónleikagestir fundu fyrir óþægindum af völdum þess.
Tilkynningar um stolna skartgripi
Lögreglan í Manchester sagðist vera að kanna hvort losun efnisins gæti tengst tilkynningum um nokkur rán í höllinni á sunnudagskvöld.
„Okkur bárust níu tilkynningar um að skartgripum hefði verið stolið á sömu tónleikum,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar.
„Við vitum að tilkynnt hefur verið um sambærileg rán á tvennum tónleikum sama listamanns í Evrópu og munum hafa samráð við starfsbræður okkar í Evrópu til að öðlast betri yfirsýn yfir þessi meintu brot,“ sagði Tom Harding aðstoðarlögreglustjóri, sem vitnað var í í tilkynningunni.
Don Toliver, sem var tilnefndur til fimm Grammy-verðlauna í síðustu viku, er með um 45 milljónir hlustenda á mánuði á Spotify.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗