Flóðhestur sem kafnaði á ullarhúfu heiðraður um helgina

Bandaríska knattspyrnufélagið FC Cincinnati ætlar að heiðra minningu flóðhestsins Fionu þegar liðið mætir Nashville í úrslitakeppni MLS-deildarinnar á laugardag.

Fiona var í miklu uppáhaldi hjá íbúum Cincinnati og hafði notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum frá fæðingu hennar í dýragarði borgarinnar árið 2017.

Hún dó á fimmtudag, aðeins níu ára gömul, eftir að hafa kafnað á ullarhúfu sem hafnaði fyrir slysni í gerði hennar. Flóðhestar geta orðið allt að 50 ára gamlir í dýragörðum.

Stuðningsmenn Cincinnati hafa útbúið risastóran borða með mynd af Fionu sem verður sýndur fyrir leikinn. Félagið mun einnig styrkja dýragarðinn um ákveðna upphæð fyrir hvern áhorfanda sem mætir á völlinn.

Nick Hagglund, varnarmaður Cincinnati sem er fæddur og uppalinn í borginni, tileinkaði Fionu mark sitt í 3-1 sigri á Orlando á fimmtudag.

„Þetta var fyrir Fionu!“ hrópaði Hagglund þegar hann fagnaði markinu.

Fiona var sannkallað tákn borgarinnar en meðal annars hafði verið búin til ístegund í höfuðið á henni og persóna í ballettsýningu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab