Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á

Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna dugi ekki mörgum til þess að ná að brúa bilið á milli tekna og útgjalda.

Þetta kemur fram í nýrri úttekt tímaritsins CEOWORLD þar sem reiknað var hlutfall þeirra sem hafa að minnsta kosti tvær vinnur í öllum löndum heimsins.

Afríka á toppnum

Á toppi listans tróna að mestu leyti fátæk ríki í þriðja heiminum. Átta af efstu tíu ríkjunum eru í Afríku sunnan Sahara, þar á meðal efstu sex ríkin.

Hæsta hlutfallið er í Vestur Afríkuríkinu Níger þar sem 54,8 prósent vinna aukavinnu. Þetta er langhæsta hlutfall heimsins en í öðru sæti kemur Tjad með 30 prósent.

Þá koma Nígería, Tógó, Gínea-Bissá, Sómalía, Perú, Síerra Leone, Bólivía, Búrúndi, Kongó, Malí, Benín, Búrkína Fasó, Grænhöfðaeyjar, Kíríbatí, Indónesía, Kómoros eyjar, Tansanía og loks Ísland í 20. sæti listans. Hlutfallið hér er 11,4 prósent.

Aðeins þrjár aðrar vestrænar þjóðir eru á meðal efstu fimmtíu þjóðanna. Það er Hollendingar með 10,4 prósent, Danir með 9,7 prósent og Svisslendingar með 7,8 prósent.

Ein vinna dugar ekki til

Í greiningunni segir að almennt séð vinni fólk aukavinnu vegna þess að það þurfi þess, ekki vegna þess að það vilji það. Til að mynda séu margar af efstu þjóðunum landbúnaðarþjóðir, þar sem atvinnan er árstíðabundin.

Þá er einnig um að ræða vandamálið að ein atvinna dugar ekki til þess að framfleyta manneskju og fjölskyldu hennar. Fær hún sér þá aukavinnu til þess að bæta það upp. Stundum aukavinnu sem er alls ótengd aðalvinnu viðkomandi. Hátt hlutfall getur því verið merki um að launaþróun sé ekki að halda í við verðhækkanir.

Svarti markaðurinn vanmetinn

Þá er nefnt að rauntölurnar séu líklega hærri í mörgum tilfellum. Það er vegna þess að sumir vinni svokallaða „svarta vinnu“, það er vinnu sem er ekki gefin upp til skatts og þar af leiðandi ólögleg. Er fólk ólíklegra til þess að viðurkenna slíkt í skoðanakönnunum. Að mati CEOWORLD er talið að þetta eigi sérstaklega við lönd í suður og austurhluta Evrópu þar sem hlutfallið mælist mjög lágt en vitað er að „svarti markaðurinn“ er stór.

Meiri þreyta

„Opinberar tölur um vinnutíma ná yfirleitt aðeins til aðalstarfs. Ef 10 prósent vinnuaflsins gegna tveimur störfum eru bæði meðalvinnutími og þreyta meiri en opinberar tölur gefa til kynna,“ segir í greiningunni. „Þetta finna fyrirtæki ekki í gögnum sínum um starfsfólk sitt, nema það sé sérstaklega spurt út í þetta.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab