FH - Bidasoa, staðan er 33:38
FH og spænska liðið Bidasoa mættust í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld og lauk leiknum með sigri Bidasoa 40:35. FH hefur því tapað öllum leikjum sínum í Evrópudeildinni hingað til.
Jafnt var á með liðunum til að byrja með og voru FH-ingar klaufar að vera ekki með forskot eftir fyrstu 10 mínútur leiksins sökum klaufagangs í sóknarleik Bidasoa.
Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn fór munurinn á liðunum að koma í ljós og seig spænska liðið hægt og rólega fram úr Hafnfirðingum.
Mestur var munurinn fimm mörk í fyrri hálfleik en gestirnir fóru með fjögurra marka forskot í stöðunni 19:15 inn í hálfleikinn.
Brynjar Narfi Arndal var markahæstur í liði FH í fyrri hálfleik með fjögur mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði fimm skot.
Hjá gestunum var Miguel Ángel Martín með sex mörk og varði David Faílde átta skot.
FH-ingar náðu nokkrum sinnum að minnka muninn niður í tvö mörk í seinni hálfleik en alltaf tókst gestunum að byggja mun sinn upp aftur og náðu þeir inn á milli fimm marka forskoti.
FH-liðið sýndi á köflum fína takta en í kjölfarið á þeim komu slæmir kaflar sem kostuðu Hafnfirðinga of mikið í baráttu sinni um fyrsta sigurinn í Evrópudeildinni. Fór því sem fór og FH-ingar eiga einn leik eftir í Evrópudeildinni og er það gegn franska liðinu Limoges í Frakklandi eftir slétta viku.
Ágúst Guðmundsson skoraði 8 mörk fyrir FH í kvöld og varði Jón Þórarinn Þorsteinsson sex skot.
Miguel Ángel Martin skoraði 8 mörk fyrir Bidasoa og varði David Fíalde 10 skot.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


