Þriðji sigur Valskvenna í röð
Alyssa Marie Cerino var stigahæst hjá Val þegar liðið heimsótti Fjölni í 7. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfubolta í Dalhús í kvöld.
Leiknum lauk með öruggum sigri Vals, 88:65, en Cerino skoraði 21 stig, tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu í leiknum.
Þetta var þriðji sigur Valskvenna í deildinni í röð en liðið er með 10 stig í fimmta sætinu, líkt og Haukar, KR og Stjarnan. Fjölnir er hins vegar áfram í neðsta sætinu án stiga og á enn þá eftir að vinna leik á tímabilinu.
Sigur Valskvenna var aldrei í hættu en Valur leiddi með 16 stigum í hálfleik, 43:17.
Reshawna Rosie Stone skoraði 17 stig fyrir Val, tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar en Anna Rún Eyþórsdóttir var stigahæst hjá Fjölni með 20 stig, sjö fráköst og eina stoðsendingu.
Gangur leiksins:: 4:6, 9:10, 9:21, 12:23, 15:31, 15:36, 21:43, 27:43, 33:43, 40:49, 42:59, 48:64, 51:67, 54:77, 58:83, 65:88.
Fjölnir: Arna Rún Eyþórsdóttir 20/7 fráköst, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 13/9 fráköst, Elín Heiða Hermannsdóttir 12/6 stoðsendingar, Helga Björk Davíðsdóttir 8/5 fráköst, Harpa Karítas Kjartansdóttir 6, Charisse Fairley 6/8 fráköst/5 stoðsendingar.
Fráköst: 22 í vörn, 10 í sókn.
Valur: Alyssa Marie Cerino 21/6 fráköst/3 varin skot, Reshawna Rosie Stone 17/5 fráköst/8 stoðsendingar, Dzana Crnac 13/4 fráköst/5 stoðsendingar, Þóranna Kika Hodge-Carr 12/5 fráköst, Vilborg Jónsdóttir 11/5 stoðsendingar, Bergdís Anna Magnúsdóttir 8, Marlee Ann Ball 6/7 fráköst.
Fráköst: 20 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Stefán Kristinsson, Bjarni Rúnar Lárusson.
Áhorfendur: 53
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗