Halla segist hrifin af óhlýðni
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segist hrifin af óhlýðni og telur hana nauðsynlega til að knýja fram samfélagsbreytingar. Hún segir íslenskar konur hafa sýnt fram á hvernig óhlýðni geti haft jákvæð áhrif.
Þetta kemur fram í viðtali við Höllu á vef Georgetown Institute for Women, Peace and Security sem birtist fyrr í dag.
„Íslenskar konur hafa ekki alltaf reynt að haga sér vel. Ég held að óhlýðni sé nauðsynleg til að breyta nokkru,“ segir Halla.
Hún nefnir í því samhengi kvennafrídaginn árið 1975 þegar konur neituðu meðal annars að mæta til vinnu og elda ofan í börnin sín.
„Ég trúi ekki á ofbeldi en þessi hugrakka samstaða og gleðilega óhlýðni hefur skilað okkur miklum framförum. Kannski gleymir fólk því að við þurfum á ákveðinni óhlýðni að halda.“
Halla nefnir einnig Free the Nipple-baráttuna og Druslugönguna sem dæmi um hvernig ungar íslenskar konur hafi beitt skapandi óhlýðni í réttindabaráttu sinni.
Hún segir Íslendinga hafa lagt áherslu á að breyta samfélagslegum viðmiðum og viðhorfum fremur en að láta staðar numið við lagabreytingar og stefnumótun. Þar kunni lykillinn að árangri Íslendinga í jafnréttismálum að liggja.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗