Afgangurinn verði 9,5 milljónum meiri en áætlað var

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. mbl.is/María

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs í dag að lokinni seinni umræðu, ásamt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2028–2030.

Gert er ráð fyrir því að rekstur bæjarins verði jákvæður um 344,1 milljón króna, sem er 9,5 milljónum króna meiri afgangur en við fyrri umræðu, en í áætlun Kópavogsbæjar er ekki gert ráð fyrir tekjum vegna úthlutunar lóða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Milli umræðna voru fjárfestingar ársins 2027 endurmetnar og lækka áætluð fjárfestingarútgjöld um 770 milljónir króna samkvæmt yfirliti yfir breytingarnar, en breytingarnar skýrast fyrst og fremst af breyttri tímasetningu framkvæmda sem fyrirséð er að komist ekki að fullu til framkvæmda á árinu 2027.

Skuldir haldist óbreyttar

Í tilkynningu er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra að þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður sé gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu og að skuldir bæjarins haldist óbreyttar.

Á næsta ári séu fyrirhugaðar umfangsmiklar fjárfestingar, ekki síst í uppbyggingu nýrra skóla og bættri aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur. 

Þá hefur framsetningu fjárhagsáætlunar verið breytt frá fyrri umræðu til samræmis við nýjar reglur um flokkun og framsetningu fjárhagsáætlana og ársreikninga sveitarfélaga. Þessar breytingar hafa þó engin áhrif á heildarrekstrarniðurstöðu, enda er eingöngu um breytta flokkun útgjalda að ræða.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab