Hviður nái allt að 35 metrum á sekúndu annað kvöld

Innlent | mbl | 24.11.2026 | 20:30

Vegagerðin biðlar til vegfarenda að hafa varann á.

Vegagerðin biðlar til vegfarenda að hafa varann á. mbl.is/Eggert Johannesson

Búast má við hvassviðri um suðvestanvert landið annað kvöld og geta vindhviður náð allt að 35 metrum á sekúndu í vindstrengjum við fjöll, meðal annars á Kjalarnesi og við Hafnarfjall.

Þetta kemur fram í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Spáð er vaxandi suðaustanátt og rigningu um suðvestanvert landið á morgun. Hvassast verður á milli klukkan 18 og 21 en hratt dregur úr vindi þegar líður á kvöldið.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab