Íslendingarnir fóru hamförum í Evrópudeildinni
Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik fyrir Kadetten þegar liðið gerði jafntefli við Chambéry, 28:28, í C-riðli Evrópudeildarinnar í Sviss í kvöld.
Óðinn var langmarkahæstur með tíu mörk en Kadetten er komið áfram í útsláttarkeppnina og búið að tryggja sér efsta sæti riðilsins. Sveinn Jóhannsson skoraði fimm mörk fyrir Chambéry sem er með þrjú stig í þriðja sætinu og á enn þá möguleika á því að komast áfram.
Skoraði þrjú í Norður-Makedóníu
Þorvaldur Örn Þorvaldsson skoraði þrjú mörk fyrir Wybrzeze Gdansk þegar liðið tapaði fyrir Pelister í G-riðlinum í Norður-Makedóníu, 34:27, en pólska liðið er í efsta sætinu með 6 stig, stigi meira en Pelister.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Flensburg þegar liðið vann stórsigur gegn Águas Santas í E-riðlinum í Þýskalandi, 33:21, en Flensburg er með tíu stig eða fullt hús stiga og komið áfram.
Mikilvægur sigur í Danmörku
Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark fyrir Holstebro þegar liðið lagði Karviná í F-riðlinum í Danmörku, 41:28, en Holstebro er í öðru sætinu með 6 stig, tveimur stigum meira en Torrelavega. Benedikt Gunnar Óskarsson komst ekki á blað hjá Holstebro og Arnór Atlason er þjálfari liðsins.
Þá skoraði Birgir Örn Birgisson eitt mark fyrir Sävehof þegar liðið lagði lærisveina Arnórs Þórs Gunnarssonar í D-riðlinum í Svíþjóð, 31:22, en Sävehof er í efsta sæti riðilsins með 8 stig á meðan Bergischer er með 5 stig í þriðja sætinu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗