Sátu fyrir lögreglumanni en voru ekki ákærðir

Samkvæmt upplýsingum sem mbl.is hefur undir höndum var lögreglumanninum tilkynnt í maí og júní síðasta árs að þekktir og hættulegir brotamenn væru að reyna að komast að því hver væri á bak við lögreglunúmer hans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglumaður sem hópur ungra brotamanna sat fyrir í bílakjallara, þar af einn vopnaður eldhúshníf, telur verulega annmarka á vinnubrögðum Héraðssaksóknara sem leiði til refsileysis gagnvart brotamönnum sem ógna öryggi lögreglumanna.

Fjölskylda hans hafi þurft að flýja heimili þeirra tímabundið vegna hótana og leitar þekktra og hættulegra brotamanna að honum, en vegna málsmeðferðar Héraðssaksóknara, sem Ríkissaksóknari taldi aðfinnsluverða, hafi ekki verið unnt að kæra mennina fyrir fyrirsátina.

RÚV greindi fyrst frá í kvöldfréttum.

Samkvæmt upplýsingum sem mbl.is hefur undir höndum var lögreglumanninum tilkynnt í maí og júní síðasta árs að þekktir og hættulegir brotamenn væru að reyna að komast að því hver væri á bak við lögreglunúmer hans. 

Það hafi verið í kjölfar afskipta sinna af vel þekktum brotamanni vegna umferðareftirlits og sekta, auk handtöku vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna – samtals um fjögur skipti. 

Lögreglumaðurinn „gert þetta persónulegt“

Fyrstu fregnir af þessari leit brotamannanna að lögreglumanninum bárust þegar fyrrnefndur brotamaður, S, hafi gefið sig á tal við lögreglumann sem var við störf á tónleikum, og spurst fyrir um nafnið á bak við lögreglunúmer hans. 

Þegar lögreglumaðurinn á tónleikunum hafi spurt hann hvað honum gengi til og hvort hann vissi ekki betur hafi S sagt að fyrrnefndur lögreglumaður hafi „gert þetta persónulegt“ með því að stöðva hann þegar hann var með börnin sín í bílnum. 

Nokkrum dögum síðar hafi annar lögreglumaður fengið sömu spurningu frá brotamönnum sem höfðu tengsl við S, og stuttu síðar hafi lögreglan fengið nafnlausa ábendingu um að nafn hans og mynd af honum væru í dreifingu í þeim tilgangi að komast að heimilisfangi hans, þar sem til stæði að heimsækja hann og beita hann ofbeldi.

Á þessum tímapunkti hafði lögreglumaðurinn fengið öryggismyndavélar og öryggiskerfi heim til sín, auk neyðarhnapps.

Þá hafði hann komið fjölskyldu sinni fyrir annars staðar, en lögheimili hans hafði verið ótilgreint í talsverðan tíma vegna fyrri hótana.

Grímuklæddir og vopnaður

Þann 8. júní 2025 kom lögreglumaðurinn heim í aðgangsstýrðan bílakjallara sinn, og þar sátu fyrir honum fimm ungir karlmenn.

Sumir þeirra hafi verið með lambhúshettur og augljóst hafi verið að þeir ættu ekkert erindi í bílageymsluna. Lögreglumaðurinn kveðst hafa óskað eftir aðstoð hið snarasta, og voru allir fimm mennirnir handteknir. Þá hafi komið í ljós að einn þeirra var vopnaður eldhúshníf.

Fjórir þeirra hafi verið undir lögaldri en sá fimmti 18 ára, og mun lögreglumaðurinn einnig hafa þekkt þann aðila vegna starfa sinna sem lögreglumaður.

Í kjölfarið hafi S verið handtekinn, sem og hinir tveir aðilarnir sem hafi verið að spyrja út í hann. Þá hafi Héraðssaksóknari tekið við rannsókn málsins og skýrslutökum, og lögreglumaðurinn hafi fengið gögn málsins nokkrum mánuðum síðar.

Sögðust vera að „skoða flotta bíla“

Í skýrslutökum af yngri aðilunum fjórum hafi komið í ljós að þeir hafi verið að leita að bifreið af ákveðinni tegund og eigi að hafa látið eldri aðilann vita ef hún fyndist.

Eldri aðilinn hafi lagt bifreið sinni við inngang að húsinu, í veg fyrir tvær aðrar bifreiðar, og hún hafi verið staðsett þannig að auðvelt sé að aka henni á brott sem fyrst.

Í skýrslutöku hafi hann sagt að hann og hinir fjórir hafi verið að „skoða flotta bíla í bílakjallaranum“ og að engin önnur ástæða hafi verið fyrir dvöl þeirra þar.

Aðilarnir fimm hafi heimilað leit í farsímum sínum. Við skoðun hafi komið í ljós að elsti aðilinn hafi leitað að upplýsingum um tvær bíltegundir á Google stuttu fyrir handtökuna, þar á meðal bíltegundinni sem hann hafi þvertekið fyrir að hafa verið að leita að. Kvöldið áður hafi hann einnig leitast við að verða sér úti um farsíma sem lögreglan geti ekki rakið eða fylgst með.

Í skýrslutöku sagði einn ungu mannanna að hann og hinir fjórir hafi verið að „skoða flotta bíla í bílakjallaranum“ og að engin önnur ástæða hafi verið fyrir dvöl þeirra þar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kvaðst ekki kannast við lögreglumanninn

Í skýrslutöku af S hafi hann kveðist ekki kannast við lögreglumanninn eða lögreglunúmer hans.

Hann hafi sagst ekki hafa verið að leita upplýsinga um hann, ekki muna hvort hann hafi talað við lögreglumann á umræddum tónleikum og kveðist kannast við aðilana tvo sem hafi einnig verið að leita upplýsinga um lögreglumanninn, en ekki vera í samskiptum við þá, en hann hafi ekki heimilað leit í farsíma sínum.

Aðilarnir tveir hafi ekki heldur heimilað leit í farsímum sínum, sagst ekki hafa spurt starfandi lögreglumann um hann og ekki kannast við aðilana sem hafi verið handteknir í bílakjallaranum. Þar með hafi rannsókn Héraðssaksóknara lokið.

Héraðssaksóknari hafi ekki reynt að fá úrskurð dómara til að heimila leit í farsímum aðalmanna málsins, heldur hafi þeim verið skilað nokkrum vikum eftir yfirheyrslurnar. Embættið hafi ekki haft samband við lögreglumanninn fyrr en ári síðar, í lok júní 2026, þegar hann hafi fengið bréf um að málið hafi verið fellt niður.

Búkmyndavél, innra kerfi og öryggismyndavélar skýrar sannanir

Miðað við gögn málsins hafi ekkert frekar verið unnið í því eftir upphaflegar yfirheyrslur og skoðun á þeim farsímum sem leyfi hafi fengist fyrir.

Myndefni úr öryggismyndavélum bílakjallarans hafi ekki verið skoðað, né heldur afskipti lögreglumannsins af umræddum aðila, sem hafi öll verið tekin upp á búkmyndavél.

Þar megi þó til að mynda sjá að aðilinn þekki lögreglumanninn vel, þvert á framburð hans. Tengsl aðalmannanna þriggja hafi ekki verið skoðuð en stutt skoðun í innra kerfi lögreglunnar hafi sýnt ítrekuð afskipti og bókanir lögreglu þar sem mennirnir, sem hafi sagst ekki vera í samskiptum, hafi verið saman.

Þar sem ekki hafi verið óskað eftir úrskurði dómara til að heimila leit í farsímum aðalmannanna telur lögreglumaðurinn að mikilvægu tækifæri til frekari rannsóknar hafi verið leyft að renna í sandinn.

Héraðssaksóknari hafi aldrei aflað gagna um hvaða bifreiðar lögreglumaðurinn eigi og aðilarnir hafi ekki verið ákærðir fyrir vopnalagabrot eða húsbrot.

Ríkissaksóknari bent á 

Í ljósi þessara annmarka á meðferð málsins hafi lögreglumaðurinn kært niðurfellingu málsins til Ríkissaksóknara, sem hafi sagt útskýringar aðilanna í bílakjallaranum með öllu ótrúverðugar og rannsókn málsins aðfinnsluverða og bent á fjölda atriða sem þurfi að skoða betur.

Héraðssaksóknara hafi einnig verið gert að taka afstöðu til kæru vegna húsbrots og vopnalagabrots.

Ríkissaksóknari hafi talið það aðfinnsluverðan annmarka að farsímum aðalmannanna hafi verið skilað án þess að reynt hafi verið að fá úrskurð dómara um leit í þeim.

Hann hafi þó staðfest niðurfellingu gagnvart aðalmönnunum, þar sem búið hafi verið að skila farsímum þeirra og eðli málsins samkvæmt sé ekki lengur unnt að rannsaka þá.

Varpar ábyrgð á embætti Héraðssaksóknara

Þótt lögreglumaðurinn hafi oft orðið fyrir vonbrigðum með rannsókn á ofbeldi eða hótunum gagnvart lögreglumönnum, hafi hann ekki búist við þessum vinnubrögðum í svona alvarlegu máli og gagnrýnir vinnubrögð Héraðssaksóknara harðlega.

Hann telur að lögreglumenn, sem og brotamenn, hafi fengið ítrekuð og skýr skilaboð um afleiðingarnar sem brot gegn valdstjórninni hafi í för með sér.

Refsiheimildir vegna brotanna séu til staðar, en framkvæmdin hafi leitt af sér refsileysi í þessum málaflokki, þvert á vilja löggjafans um hið gagnstæða.

Hann varpar því allri ábyrgð vegna þessa veruleika á embætti Héraðssaksóknara og þau vinnubrögð, eða öllu heldur skort á vinnubrögðum, sem þar hafi viðgengist við rannsókn mála þar sem vegið sé að öryggi og persónum lögreglumanna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab