Segir Írana vera að þróa efnavopn
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir Írana vinna að þróun efnavopna og heitir því að koma í veg fyrir að þeir komist yfir slík vopn.
Í yfirlýsingu sem Likud-flokkurinn birti í dag sagði Katz að Íranar hefðu enn ekki öðlast getu til að gera árás á Ísrael með efnavopnum. Hann útilokaði ekki að Ísraelar gerðu fyrirbyggjandi árás á Íran teldu þeir að árás væri yfirvofandi.
Bandaríska fréttastöðin CNN greindi frá því í síðustu viku, með vísan í upplýsingar bandarísku leyniþjónustunnar, að Íranar hefðu unnið að áætlunum um árás á háttsetta embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í Washington.
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, vísaði fréttinni á bug og sagði hana áróður að undirlagi Ísraela.
Gadi Eisenkot, sem falið hefur verið að mynda nýja ríkisstjórn í Ísrael, sagði á mánudag að þótt Íran væri alvarlegasta ógnin við öryggi Ísraels væri að svo stöddu engin yfirvofandi ógn sem kallaði á hernaðaraðgerðir áður en ný ríkisstjórn tæki við.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗