Greina frá andláti eftir hörmulegt slys - „Eigum ekki orðin til að lýsa sorginni“

Argentínski knattspyrnumaðurinn Ivan Miers er látinn eftir að hafa orðið fyrir eldingu í miðjum fótboltaleik. Hann var 35 ára gamall.

Miers var að spila æfingaleik með Sportivo Patria í borginni Formosa í Argentínu þegar óveður skall skyndilega á. Eldingu laust niður í Miers og liðsfélaga hans, Juan Romero.

Liðsfélagar þeirra komu þeim í flýti undir læknishendur. Miers var lagður inn á gjörgæsludeild en lést nokkrum klukkustundum síðar.

Romero er enn á sjúkrahúsi en er kominn úr lífshættu.

Sportivo Patria átti fyrir höndum mikilvægan úrslitaleik um sæti í deildinni fyrir ofan en honum hefur nú verið frestað.

„Við eigum ekki orðin til að lýsa sorginni,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Fyrrum félög Miers hafa einnig minnst hans á samfélagsmiðlum og sent fjölskyldu hans samúðarkveðjur.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab