Aston Villa tapaði í Tyrklandi

Leikmenn Galtasaray fagna sigurmarkinu í kvöld.

Leikmenn Galtasaray fagna sigurmarkinu í kvöld. AFP/YASIN AKGUL

Deniz Gül reyndist hetja Galatasaray þegar liðið tók á móti Aston Villa í 5. umferð Meistaradeildarinnar í fótbolta í Tyrklandi í kvöld.

Leiknum lauk með naumum sigri Galatasaray, 1:0, en Gül skoraði sigurmarkið á 77. mínútu. Galatasaray er í 13. sætinu með 9 stig, líkt og Aston Villa sem er í því sjötta.

Þá er Bodö/Glimt komið í 16. sætið eftir dramatískan sigur gegn LASK í Noregi, 1:0, þar sem Melayro Bogarde varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í uppbótartíma síðari hálfleiks en Norðmennirnir eru með 7 stig.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab