Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“

„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra en eitthvað kossaflens,“ segir Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður og ritstjóri um fyrstu fréttina um kossamálið svokallaða í Hagaskóla sem skók samfélagið í síðustu viku. 

Steingerður ræddi um málið í Rauða borðinu með Birni Þorlákssyni á Samstöðinni, þar byrjaði Björn á að fara yfir málið. „Þetta byrjar sem einhver furðuleg fyrirsögn um kossaflens en enginn skilur hvað er þarna í gangi, reyndist svo hafa verið kynlíf.“

Málið rataði fyrst í fjölmiðla á miðvikudagskvöldið þegar Vísir greindi frá því að mannauðsskrifstofa Reykjavíkurborgar væri búið að fá inn á borð til sín kossa úr vinnurými á bak við sandblástursfilmu og DV greindi frá því að forráðamenn nemenda hefðu verið upplýstir um atvikið. 

Sjá einnig: Forráðamenn nemenda við Hagaskóla upplýstir um atvik í gær - Tveir starfsmenn „sáust kyssast“

Á fimmtudagsmorguninn höfðu margir á samfélagsmiðlum orð á því að þarna væri óþarfa tepruskapur að gera mál úr kossum starfsfólks. Það var svo um hádegisbilið daginn eftir sem það var staðfest að um hefði verið að ræða kynlíf og að myndir og myndbönd af því væru í dreifingu. 

Steingerður, sem er með áratugalanga reynslu úr fjölmiðlum, segir að henni finnst málið ekki hafa verið frétt í sjálfu sér. 

„Svo finnst mér persónulega alveg hræðilegt, það er sá vinkill sem mér finnst áhugaverðastur í þessu máli, þó að þetta fólk hafi sýnt af sér dómgreindarbrest, þá er staðreynd að þetta er tekið upp og þessu er lekið á netið og þetta er farið út um allt. Mér finnst það vera frétt og ætti að ræða,“ segir hún. 

„Er ekki verið að refsa okkur óheyrilega mikið fyrir að gera ein mistök, þótt stór séu, með því að taka okkur upp og svo erum við komin út um allt og allur almenningur er kominn með aðgang að þessu. Nú er ekki eins og þetta fólk um ræðir sé opinbert eða sé á einhvern hátt í stöðu innan samfélagsins að almenningur, þá er ég ekki endilega að tala um foreldra skólabarna í Hagaskóla, heldur bara við hin eigum ekki að hafa aðgang að einkalífi þessa fólks, alls ekki. Svo getur þetta verið brot á persónuverndarlögum og mér finnst áhugavert að sjá að símabann menntamálaráðherra gildir greinilega ekki í Hagaskóla, fyrst að hægt var að taka þetta upp.“

Hugsanlegt að umfjöllun hafi ýtt undir dreifingu mynda

Friðrik Þór Guðmundsson, Lilló, sem var með henni í þættinum benti á að Steingerður var ekki beint að tala um fjölmiðla í þessu samhengi. Hún segir að það breyti ekki sinni skoðun um að fjölmiðlar hefðu ekki átt að flytja fréttina. „Svo er hitt ekki á ábyrgð blaðamannanna að þetta skyldi fara svona, mér finnst það áhugaverðari vinkill á málið heldur en það hvort blaðamenn hefðu átt að birta þessa frétt út af fyrir sig er það ekki það sem setur í gang þessa atburðarrás sem ég er viss um að komi mjög illa niður á þessu fólki sem um ræðir,“ segir Steingerður, þá af hendi almennings. „Fréttin í stóra samhenginu er saklaus miðað við það sem á eftir fór.“

Björn velti því upp hvort með því að fjalla um málið hafi fjölmiðlar ýtt undir dreifingu myndanna. „Það er hugsanlegt,“ segir Steingerður. „Það er mjög líklega hvatinn af því. Svo er líka mjög áhugavert, eitthvað sem við ættum að ræða og fjölmiðlar ættu að ræða, þessa staðreynd að það eru allir alltaf með síma á lofti. Þú getur verið staddur úti í búð og þú missir stjórn á þér við afgreiðslustúlku sem er ókurteis, eða eitthvað, og þá ertu bara kominn á netið. Er þetta framtíðin hjá okkur? Er þetta eitthvað sem við erum tilbúin að sætta okkur við?“

Nefnir hún sem dæmi umfjallanir Vestanhafs. „Það er verið að taka upp einhverjar konur sem eru kallaðar Karen því þær eru að kvarta undan einhverjum óþarfa. Það er verið að taka myndir af fólki úti á götu og gera stólpagrín að klæðaburði þess.“

Komu þá upp umræður um hvernig fjölmiðlar hefðu breyst á undanförum árum, Björn segir að þegar hann hafi verið á RÚV fyrir aldarfjórðungi þá hefði mál sem þetta aldrei ratað í fréttir þar. 

Fjölmiðlar hafi verið faglegir í málinu

Friðrik Þór Guðmundsson, Lilló. Skjáskot/Samstöðin

Lilló telur að fjölmiðlar eigi að fjalla um allt sem er mannlegt í samfélaginu. „Það eru mörk og ég vil gera skýran greinarmun á því sem almenningur er að setja fram á samfélagsmiðlum og því sem faglegir blaðamenn setja fram, og ég fæ ekki betur séð en að fjölmiðlar hafi verið faglegir að því leyti til að halda sig innan réttra marka. Það hefur enginn fjölmiðill birt nöfn þessa fólks og það hefur enginn fjölmiðill birt þetta myndband, það eru þá einhverjir aðrir og ófaglegir sem eru að dreifa því. Ég tel rétt að greina frá þessu máli og ég efast ekki um að fjölmiðlar hafi verið byrjaðir að heyra um þetta nokkru áður en fyrsta frétt var birt.“

Björn spurði hann þá beint út hvers vegna almenningur hafi átt að vita af þessu máli, því svaraði Lilló: „Almenningur á að fá að vita allt sem er að gerast í samfélaginu. Fjölmiðlar eiga að endurspegla það sem gerist í samfélaginu. Fjölmiðlar hafa alltaf gert það en með því að hafa í huga þessi mörk, persónuvernd, sanngirni og heiðarleiki.“

Hér má horfa á umræðurnar í heild sinni:

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab