Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“

Kristinn H. Guðnason

Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 20:03

Unnar hefur setið í fangelsi stóran hluta ævinnar. Skjáskot/RÚV

Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítrekaðra umferðarlagabrota og fíkniefnabrota. Sakaði hann meðal annars soninn um alvarleg brot sem leiddi til þess að sérsveit lögreglunnar réðst til aðgerða gegn honum.

Dómurinn yfir Unnari féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Fangelsisdómurinn er óskilorðsbundinn og við hann bætist ævilöng svipting ökuréttar, samanlagður um 3,1 milljóna málskostnaður og samanlagðar bætur upp á 1 milljón króna til mæðginanna.

Blandaðist inn í forræðisdeilu

Málið má rekja til forræðisdeilu sonarins við barnsmóður sína en Unnar hafði tekið stöðu með henni í deilunni. Sagði Unnar lögreglu að sonurinn væri með hlaðna skammbyssu undir rúminu sínu og að hann seldi kókaín. Þetta leiddi til þess að sérsveitin var kölluð út til aðgerða gegn honum en upplýsingar Unnars reyndust upplognar.

Þá sendi hann ítrekað textaskilaboð til móður hans með lítt duldum hótunum. Meðal annars:

„Thrifudaur ég veit kvar hann byr og veit kvar Thu byrd eg kem og eg meidi“

Sem og:

„hahahahaha lögga her lögga thar eg kem til thin tík“

Játaði hann fyrst í skýrslutöku að hafa sent skilaboðin en dró svo þá játningu til baka fyrir dómi. Önnur gögn sýndu að hann hafði vissulega samið hótanirnar.

Fyrir utan málin gegn mæðginunum var Unnar sakfelldur fyrir að hafa margsinnis keyrt bíl sviptur ökurétti á rúmlega eins árs tímabili. Í flestum tilvikum var hann undir áhrifum vímuefna og slævandi lyfja og í eitt skipti ók hann utan í annan bíl sem kom úr gagnstæðri átt.

Sjá einnig:

Unnar hefur setið í fangelsi stóran hluta ævi sinnar – Nú hafa rúm tvö ár bæst við

Dómari taldi Unnar ekki eiga sér neinar málsbætur og hlaut hann þann dóm sem áður var reifaður. Var þetta einnig hegningarauki við annan dóm hans frá árinu 2025.

Fyrsta innbrotið sex ára

Unnar á sér langa brotasögu að baki eins og kom fram í þætti Jóns Ársæls Þórðarsonar, Paradísarheimt á RÚV, árið 2018. Hafði hann þá setið í fangelsi stóran hluta ævi sinnar. Kom fram að hann væri vinsæll meðal samfanga sinna en fíkn hefði sett mikinn svip á ævi hans.

Í þættinum sagðist Unnar hafa fyrst brotist inn sex ára gamall, þá í dúfnakofa. Um svipað leyti tók hann fyrsta sopann af áfengi. Fyrsta fangelsisdóminn hlaut hann 18 ára. Einnig kom fram að hann hefði flúið úr fangelsi en verið gómaður á Reykjavíkurflugvelli á leið til Færeyja.

Árið 2023 var einnig greint frá því í fjölmiðlum að Unnar hefði fengið tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir uppsöfnuð brot. Meðal annars umferðarlagabrot, fíkniefnabrot, innbrot og þjófnað.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab