Krúttlegasta jólanammi sem til er

Hversu sætir eru þessir jólasveinabitar? Skjáskot/Instagram

Það er alltaf gaman að útbúa sætbita fyrir jólin, hvort sem það eru smákökur, heimagert konfekt eða annað góðgæti. Fyrir þá sem vilja sleppa bakstrinum eru þessir litlu jólasveinabitar tilvaldir. Það tekur enga stund að græja þá og útkoman er bæði krúttleg og gómsæt, án mikillar vinnu eða vesens.

Í bitana þarftu Oreo-kexkökur, rjómaost og rjóma sem er þeytt saman, jarðarber, dökkt súkkulaði, litla sykurpúða og flórsykur. Fyrir nefið má nota súkkulaðibita, hnetusmjörsnammi á borð við Reese’s Pieces, hnetur eða Smartís. Það má að sjálfsögðu leika sér með uppskriftina og nota það sem er til eða það sem þér finnst best.

Byrjaðu á að bræða dökka súkkulaðið og dýfa jarðarberjunum að hluta í það. Settu síðan væna slettu af rjómaostablöndunni á hverja Oreo-kexköku til að mynda jólasveinaskeggið. Gott er að nota sprautupoka til að auðvelda verkið. Settu jarðarber ofan á með oddinn upp svo það minni á jólasveinahúfu. Lítill sykurpúði á toppnum verður að dúskinum og nammi eða hneta að nefinu.

Að lokum er flórsykri sáldrað yfir til að líkja eftir snjó.

Þessir litlu jólasveinar munu án efa gleðja jafnt unga sem aldna. Best er að útbúa þá sem næst því að bera þá fram svo berin séu sem ferskust. Og ef þeir klárast fljótt er lítið mál að græja fleiri!

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab