„Stundum þarf maður bara að hætta að hafa áhyggjur“

Sandra Bullock á frumsýningu Practical Magic 2 í Los Angeles í lok ágúst. AFP/Valerie Macon

Leikkonan Sandra Bullock fór á dögunum með börnunum sínum tveimur í Disneyland í Kaliforníu. Hún birti myndir úr ferðinni á Instagram-síðu sinni, en það er sjaldgæft að hún deili myndum af þeim Louis, sem er 16 ára, og Lailu, 14 ára.

Leikarinn Josh Holloway, sem fór með eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum Lost, var einnig með í för ásamt börnum sínum, Jövu, 17 ára, og Hunter, 12 ára. Á einni myndinni sjást þau öll sex á ferð í rússíbananum Space Mountain. Á annarri heldur Bullock utan um Lailu.

Sandra Bullock og Josh Holloway á ferð í rússíbananum ásamt börnum sínum fjórum. Skjáskot/Instagram

„Stundum þarf maður bara að hætta að hafa áhyggjur og rifja upp hvernig það er að vera barn,“ skrifaði Bullock, sem er 62 ára.

Með færslunni birti hún einnig mynd af ísnum sem þau fengu sér og sagði í gamni að ís væri hitaeiningalaus ef maður kæmist í gegnum Guardians of the Galaxy-tækið án þess að gráta.

Bullock ættleiddi Louis í janúar 2010 þegar hann var þriggja mánaða. Laila bættist í fjölskylduna árið 2015. Árið 2022 tók Bullock sér hlé frá leiklistinni til að verja meiri tíma með börnunum. Hún sneri aftur á hvíta tjaldið fyrr á þessu ári í kvikmyndinni Practical Magic 2.

People

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab