Beðið eftir takka og pakka frá Apple

Kort/mbl.is

Á degi íslenskrar tungu héldu Almannarómur og Íslandsstofa upp á daginn með því að bjóða tölvurisanum Apple að ýta á takka og hleypa íslenskunni inn í tæki sín. Logi Einarsson menningarráðherra hafði borið þetta erindi upp við fulltrúa fyrirtækisins í apríl, en í kjölfarið fengu þeir íslensk máltæknigögn til frjálsra afnota.

Apple stóðst þó freistinguna og íslenskir iPhone-notendur geta ekki valið sér íslenskt notendaviðmót eða spjallað við Siri á íslensku.

Þó að Ísland sé smár markaður er markaðshlutdeild iPhone með mesta móti hér á landi. Samkvæmt mælingum Statcounter eru 63% vefsíðnubeiðna úr íslenskum snjallsímum frá iPhone, en af fullgildum löndum Evrópu er hlutfallið aðeins hærra í Danmörku (67%). Meðaltalið í Evrópu er 36%, í Bretlandi er það 50% og í Bandaríkjunum 52%.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab