Leikbann varnarmanns United dregið til baka

Leny Yoro brýtur á Alexander Isak á laugardaginn.

Leny Yoro brýtur á Alexander Isak á laugardaginn. AFP/Paul Ellis

Franski knattspyrnumaðurinn Leny Yoro er gjaldgengur með félagsliði sínu Manchester United þegar liðið tekur á móti Brentford í 12. umferð úrvalsdeildarinnar á Old Trafford á laugardaginn kemur.

Þetta tilkynnti enska félagið á samfélagsmiðlum sínum en Yoro, sem er 21 árs gamall, fékk að líta rauða spjaldið strax á 8. mínútu í 4:0-tapinu gegn Liverpool í 11. umferð úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn síðasta á Anfield.

United áfrýjaði rauða spjaldinu og aganefnd úrvalsdeildarinnar ákvað að draga leikbannið til baka.

United er í slæmum málum í 19. sæti úrvalsdeildarinnar með 8 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab