Heilbrigðisnefndin fundar í vikunni

Fiskvinnsla Premium of Iceland í Reykjanesbæ hefur staðið í stappi við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja vegna starfleyfis fyrirtækisins á svæði sem til framtíðar er hugsað undir íbúabyggð. Á sama svæði fer fram margvíslegur annar iðnaður og óvíst hvenær kemur til breytinga á hverfinu. Bærinn vill að fyrirtæki fái að starfa áfram þar til annað hafi verið ákveðið.

Ný starfsleyfisumsókn fiskvinnslunnar Premium of Iceland er meðal mála sem tekin verða fyrir á fundi Heilbrigðisnefndar Suðurnesja í vikunni.

Ný skráning starfsleyfis fyrirtækisins hefur ekki verið staðfest hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og niðurstaða málsins liggur ekki fyrir, samkvæmt svörum frá Ásmundi E. Þorkelssyni,  framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

„Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjölda annarra fyrirtækja sem kunna að vera í sambærilegri stöðu,“ segir hann jafnframt um hvort önnur fyrirtæki í hverfi fiskvinnslunnar í Reykjanesbæ séu að leita eftir endurnýjun starfsleyfis.

Að áeggjan bæjarstjóra Reykjanesbæjar sótt fiskvinnslan aftur um starfsleyfi í haust, eftir að hafa fengið synjun í vor á þeim forsendum að skipulagsáætlanir bæjarins gerðu ráð fyrir því að íbúabyggð kæmi í staðinn fyrir iðnaðarstarfsemi á svæðinu.

Þá voru í september staðfestar dagsektir sem lagðar höfðu verið á fyrirtækið þar til það hætti starfsemi við Brekkustíg 22 í Reykjanesbæ.

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, áréttaði nú fyrir helgina að afstaða bæjarins væri óbreytt um að fyrirtæki á umræddu svæði ættu að fá að starfa áfram þar til kveðið hafi verið á um annað.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅