Þar sem ríkir ógn og örvænting
Leit „Innblásturinn er þessi leit held ég, einhvers konar furðuleg ánægja af því að leita,“ segir Kari Ósk ljóðskáld. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kari Ósk Grétudóttir er ljóðskáld, myndlistarkona og þýðandi. Fyrsta ljóðabók hennar, Les birki, kom út árið 2020 og nýlega sendi hún frá sér Undir þér jörðin, þar sem tengsl manns og náttúru, sársauki og huggun eru meðal viðfangsefna.
Þú ert menntuð í myndlist og listasögu og hefur starfað við þýðingar, kennslu og safnafræðslu. Hvenær fóru ljóðin að kalla á þig?
„Já, ég er menntuð í myndlist en ljóðin hafa fylgt mér síðan ég var unglingur þó að ég hafi ekki gefið út ljóðabók fyrr en korter í fertugt. Í myndlistarnáminu í LHÍ spruttu ljóðin stundum upp úr skúffunni og enduðu í nokkur skipti í myndlistarverkum en það var síðan í kringum 2018 að ég fór að finna fyrir sterkari þörf til að tala við aðra en sjálfa mig í gegnum ljóðin,“ segir Kari sem segist finna fyrir ákveðnum tengslum á milli ljóða og sjónlista.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗