„Hafa sterka rödd í öllu sköpunarferlinu“
Það er kraftur og fjör hjá nemendum Leiklistarskóla Borgarleikhússins og þau búin að auka sjálfstraustið og læra mikið um leikhús. mbl.is/Eyþór
„Við sýnum tvö frumsamin leikrit á litla sviði Borgarleikhússins núna á miðvikudaginn,“ segir Emelía Antonsdóttir Crivello, skólastjóri Leiklistarskóla Borgarleikhússins, sem fagnar 10 ára starfsafmæli í ár.
Emelía tók við sem skólastjóri árið 2020 og skólinn hefur verið í markvissum vexti undanfarin ár en nemendurnir eru á aldrinum 10-15 ára. Fyrr á árinu fékk barna- og ungmennastarfið í Borgarleikhúsinu hvatningarverðlaun Grímunnar.
„Við erum með þriggja ára nám fyrir börn á grunnskólaaldri í leiklist, auk þess að vera með sumarnámskeið,“ segir Emelía. „Lokaárið er sýningarár og þá setja þau upp frumsamin leikrit, bæði á haust- og vorönninni.“
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗