Leikbann varnarmanns United dregið til baka
Franski knattspyrnumaðurinn Leny Yoro er gjaldgengur með félagsliði sínu Manchester United þegar liðið tekur á móti Brentford í 12. umferð úrvalsdeildarinnar á Old Trafford á laugardaginn kemur.
Þetta tilkynnti enska félagið á samfélagsmiðlum sínum en Yoro, sem er 21 árs gamall, fékk að líta rauða spjaldið strax á 8. mínútu í 4:0-tapinu gegn Liverpool í 11. umferð úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn síðasta á Anfield.
United áfrýjaði rauða spjaldinu og aganefnd úrvalsdeildarinnar ákvað að draga leikbannið til baka.
United er í slæmum málum í 19. sæti úrvalsdeildarinnar með 8 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗