Jökull og Bruna Ludmila ástfangin í Iðnó
Jökull Júlíusson og Bruna Ludmila voru í essinu sínu í Iðnó þegar Bara tala og Brim buðu til opins samtals um íslenskuna. Eftir fjörugar umræður spilaði hljómsveit Jökuls, Kaleo, fyrir gestina og svo mætti Klara Einarsdóttir og söng.
Jón Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Bara tala opnaði viðburðinn og bauð gesti velkomna.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims ræddu málin en á svæðinu voru alþingismenn, kennarar og nemendur. Halla hvatti viðstadda til að nota íslenskuna í daglegum samskiptum og lagði áherslu á að sýna þeim sem væru að læra tungumálið þolinmæði.
Hulda Birna Baldursdóttir frá Samtökum iðnaðarins stýrði pallborðsumræðum um það hvernig vinnustaðir geta gefið starfsfólki svigrúm til að læra íslensku og nota hana í vinnunni. Í pallborðinu sátu Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Peter Weiss, stjórnarformaður samtakanna Gefum íslensku séns.
Í Iðnó þennan dag skrifaði Peter Weiss undir samstarfssamning við Jón Gunnar Þórðarson. Samstarfið gerir fyrirtækjum kleift að bjóða starfsfólki blandað nám sem sameinar stafrænt íslenskunám með Bara tala og stuðning frá kennurum á vegum samtakanna. Með samstarfinu verður fólki líka auðveldara að finna sér félagsskap til að tala íslensku.
Að undirritun lokinni var skálað fyrir íslenskunni og samstarfinu. Þá steig Kaleo á svið og flutti „Sofðu unga ástin mín“ og „Vor í Vaglaskógi“. Dr. Victor tók svo við og lauk viðburðinum með danstónlist sinni.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðlsustjóri Brims og Peter Weiss stjórnarformaður Gefum íslensku Séns. Ljósmynd/Silla Páls
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, Hulda Birna Baldursdóttir hjá Samtökum Iðnaðarins, Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festis og Peter Weiss stjórnarformaður. Ljósmyns/Silla Páls
Brynhildur Guðjónsdóttir, Guðrún Nordal, Lilja Dögg Jónsdóttir og Ásta S. Fjeldsted. Ljósmyns/Silla Páls
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


















