Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
Harmleikur átti sér stað í Plant City í Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag þegar fimm manna fjölskylda fannst látin á heimili sínu.
Lögregla telur að 34 ára karlmaður hafi orðið eiginkonu sinni og þremur ungum börnum þeirra að bana áður en hann svipti sig lífi.
Bandaríska tímaritið People fjallar um málið en lögregla hefur nú opinberað nöfn hinna látnu. Konan hét Raquel Luechtefeld og var 34 ára. Börn hennar voru Enoch, fimm ára, Hannah, þriggja ára, og Job, aðeins eins árs.
Lögregla var kölluð á vettvang í kjölfar átakanlegs símtals til neyðarlínunnar. Chad Chronister lögreglustjóri sagði á blaðamannafundi að eitt barnanna hefði ítrekað beðið föður sinn um að þyrma lífi sínu.
„Pabbi, gerðu það, ekki drepa mig,“ heyrðist barnið segja.
Fjölskyldan hafði búið á heimilinu í eitt ár og hafði lögregla ekki áður verið kölluð þangað á þeim tíma. Ekki liggur fyrir hvað föðurnum, Isaac Luechtefeld, gekk til.
Hjónin héldu úti sameiginlegum Facebook-reikningi þar sem þau deildu myndum úr fjölskyldulífinu og ástúðlegum skilaboðum hvort til annars.
Aðstandendur hafa komið á fót söfnun á GoFundMe þar sem þeir minnast Raquel og barnanna.
„Þau voru innilega elskuð, þau skiptu máli og áttu skilið að fá að vaxa úr grasi, láta sig dreyma, hlæja og upplifa allt það fallega sem lífið hafði upp á að bjóða,“ segja aðstandendurnir og bæta við: „Þau áttu allt lífið fram undan.“
Á blaðamannafundi hvatti Chronister þá sem glíma við erfiðleika til að leita sér aðstoðar.
„Ég bið ykkur öll, ef þið þurfið á hjálp að halda, að hafa hugrekki og styrk til að biðja um hana,“ sagði hann.
„Ég bið ykkur, ekki bara sem lögreglustjóri heldur líka sem eiginmaður, faðir og vinur: Ef þið eigið í erfiðleikum er varanleg lausn á tímabundnu vandamáli aldrei svarið.“
---
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.
Verðir þú fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Þá má nálgast leiðarvísi fyrir þolendur slíks ofbeldis á vef Neyðarlínunnar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗