Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði

Kristinn H. Guðnason

Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 19:30

Pazos er helsáttur við íbúðina sem hann leigir fyrir 600 evrur. Skjáskot/Instagram

Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti vera betra.

Í myndbandi á Instagram greinir Pazos frá kostum þess að hafa flutt til Íslands. Einkum nefnir hann húsaleiguna, 600 evrur, eða 82 þúsund krónur, sem eru dregnar beint af laununum hans. Sýnir hann frá íbúð sinni, sem ekki kemur fram hvar er, en hún er á jarðhæð með garði og palli. Inni má sjá eldhúsið, baðherbergið og svefnherbergi.

„Í Madríd eða Barcelona hefði ég verið í pínulítilli íbúð fyrir þetta,“ segir Pazos í myndbandinu sem fjallað er um í spænska miðlinum La Razon.

Sparar pening

Segir hann að fjárhagurinn hafi vænkast við að flytja til Íslands og að hann geti sparað töluverðan pening. En hann er einn af fjölmörgum útlendingum sem kom til Íslands til þess að vinna í ferðamanna og veitingageiranum. Í myndbandinu greinir hann hins vegar ekki frá því hvað hann fær í laun sem þjónn á íslenskum veitingastað.

Spánn enn þá bestur

„Hérna eru launin tvöföld það sem ég myndi fá á Spáni,“ segir hann. Hann segist þó enn þá elska heimaland sitt. „Að mínu mati er Spánn besta land í heimi,“ segir hann, vegna veðurfarsins, landslagsins og samfélagsins.

Þá segir Pazos að það sé ekki bara dans á rósum að búa á Íslandi. Veðrið sé einn helsti gallinn, sérstaklega á veturna. „Eftir um það bil mánuð eða tvo byrjar að snjóa, svo koma snjóstormar og það verður kalt,“ segir hann í myndbandinu sem var tekið upp í september síðastliðinn.

Myndbandið má sjá hér.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab