Sky Sports segir Frey nálgast starfið
Swansea í ensku B-deildinni hefur boðið Frey Alexanderssyni starf aðalþjálfara. Sky Sports greinir frá þessu í kvöld.
Freyr hefur átt í viðræðum við Swansea eftir að Vitor Matos lét af störfum til að taka við Strasbourg. Íslendingurinn ku hafa heillað forráðamenn félagsins í viðræðunum.
Samþykki Freyr tilboðið þarf Swansea að semja við Alfreð Finnbogason, yfirmann knattspyrnumála hjá Rosenborg, og félaga um greiðslu fyrir hann.
Sky Sports segir jafnframt að Swansea, sem er í umspilssæti um að komast í úrvalsdeildina sem stendur, sé með fleiri þjálfara í sigtinu ef ske kynni að ekki takist að klára skipti Freys fyrir vikulok.
Freyr tók við Rosenborg í sumar og hefur snúið gengi liðsins í norsku úrvalsdeildinni gjörsamlega við. Áður hefur hann heillað með störfum sínum hjá Lyngby, Brann og Kortrijk, auk þess sem hann þjálfaði auðvitað íslenska kvennalandsliðið og var aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗