Jökull og Bruna Ludmila ástfangin í Iðnó

Kærustuparið Jökull Júlíusson og Bruna Ludmila.

Kærustuparið Jökull Júlíusson og Bruna Ludmila. Ljósmyns/Silla Páls

Jökull Júlíusson og Bruna Ludmila voru í essinu sínu í Iðnó þegar Bara tala og Brim buðu til opins samtals um íslenskuna. Eftir fjörugar umræður spilaði hljómsveit Jökuls, Kaleo, fyrir gestina og svo mætti Klara Einarsdóttir og söng. 

Jón Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Bara tala opnaði viðburðinn og bauð gesti velkomna.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims ræddu málin en á svæðinu voru alþingismenn, kennarar og nemendur. Halla hvatti viðstadda til að nota íslenskuna í daglegum samskiptum og lagði áherslu á að sýna þeim sem væru að læra tungumálið þolinmæði. 

Hulda Birna Baldursdóttir frá Samtökum iðnaðarins stýrði pallborðsumræðum um það hvernig vinnustaðir geta gefið starfsfólki svigrúm til að læra íslensku og nota hana í vinnunni. Í pallborðinu sátu Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Peter Weiss, stjórnarformaður samtakanna Gefum íslensku séns.

Í Iðnó þennan dag skrifaði Peter Weiss undir samstarfssamning við Jón Gunnar Þórðarson.  Samstarfið gerir fyrirtækjum kleift að bjóða starfsfólki blandað nám sem sameinar stafrænt íslenskunám með Bara tala og stuðning frá kennurum á vegum samtakanna. Með samstarfinu verður fólki líka auðveldara að finna sér félagsskap til að tala íslensku. 

Að undirritun lokinni var skálað fyrir íslenskunni og samstarfinu. Þá steig Kaleo á svið og flutti „Sofðu unga ástin mín“ og „Vor í Vaglaskógi“. Dr. Victor tók svo við og lauk viðburðinum með danstónlist sinni.

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðlsustjóri Brims og Peter Weiss stjórnarformaður Gefum íslensku Séns. Ljósmynd/Silla Páls

Jón Gunnar Þórðarson, Jökull Júlíusson og Halla Tómasdóttir.

Jón Gunnar Þórðarson, Jökull Júlíusson og Halla Tómasdóttir. Ljósmyns/Silla Páls

Jónas Gestur Jónasson og Ásgeir Friðgeirsson.

Jónas Gestur Jónasson og Ásgeir Friðgeirsson. Ljósmynd/Silla Páls

Kaleo og Dr. Victor.

Kaleo og Dr. Victor. Ljósmynd/Silla Páls

Hér má sjá hljómsveitina Kaleo syngja fyrir gestina.

Hér má sjá hljómsveitina Kaleo syngja fyrir gestina. Ljósmynd/Silla Páls

Odd Roland Lund og Kristín Oddsdóttir.

Odd Roland Lund og Kristín Oddsdóttir. Ljósmynd/Silla Páls

Roberto Luigi Pagani, aðjunkt við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Roberto Luigi Pagani, aðjunkt við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ljósmynd/Silla Páls

Helga Fjóla Sæmundsdóttir, mannauðsstjóri BM Vallá.

Helga Fjóla Sæmundsdóttir, mannauðsstjóri BM Vallá. Ljósmynd/Silla Páls

Dr. Victor spilaði góð lög.

Dr. Victor spilaði góð lög. Ljósmyns/Silla Páls

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, Hulda Birna Baldursdóttir hjá Samtökum Iðnaðarins, Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festis og Peter Weiss stjórnarformaður. Ljósmyns/Silla Páls

Guðmundur Kristjánsson og Peter Wiess.

Guðmundur Kristjánsson og Peter Wiess. Ljósmyns/Silla Páls

Halla Tómasdóttir forseti Íslands.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Ljósmyns/Silla Páls

Keenan Botha og Jakob Wayne Víkingur Robertson, landsliðsmenn í Krikket.

Keenan Botha og Jakob Wayne Víkingur Robertson, landsliðsmenn í Krikket. Ljósmyns/Silla Páls

Klara Einarsdóttir tók lagið.

Klara Einarsdóttir tók lagið. Ljósmyns/Silla Páls

Jökull Júlíusson.

Jökull Júlíusson. Ljósmyns/Silla Páls

Bala Kamallakharan og Ágústa Berg.

Bala Kamallakharan og Ágústa Berg. Ljósmyns/Silla Páls

Klara Einarsdóttir og Þorlákskórinn sungu Vegbúann eftir KK.

Klara Einarsdóttir og Þorlákskórinn sungu Vegbúann eftir KK. Ljósmyns/Silla Páls

Brynhildur Guðjónsdóttir, Guðrún Nordal, Lilja Dögg Jónsdóttir og Ásta S. Fjeldsted. Ljósmyns/Silla Páls

Ásta Fjeldsted.

Ásta Fjeldsted. Ljósmyns/Silla Páls

内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab