Bjóða Frey starfið í Wales

Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson. Ljósmynd/Brann

Forráðamenn velska knattspyrnufélagsins Swansea hafa boðið Frey Alexanderssyni að taka við þjálfun liðsins.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Freyr, sem er 44 ára gamall, stýrir í dag Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni.

Forráðamenn velska félagsins hafa undanfarna daga átt í viðræðum við Frey um að taka við þjálfun liðsins en félagið er í þjálfaraleit eftir að Vitor Matos tók við þjálfun Strasbourg í síðustu viku.

Ashley Williams, fyrrverandi fyrirliði Swansea, hefur stýrt liðinu síðan sem bráðabirgðastjóri félagsins en Swansea er í áttunda sæti ensku B-deildarinnar með 27 stig, fimm stigum minna en topplið Middlesbrough og Stoke.

Fari svo að Freyr samþykki boð Swansea mun félagið þurfa að semja við Rosenborg um að fá íslenska þjálfarann lausan.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab